Á morgun fyrir mótið þurfa bæði liðin að kjósa sér fyrirliða. Fyrirliði er mikilvægur sérstaklega þegar ekki er þjálfari á línunni. Hann er sá eini sem má tala við dómarann á meðan á leik stendur og því stjórnar hann inn á skiptingum, leikhléum og ræðir við dómara og biður um útskýringar á dómum. Hann sjórnar með öðrum orðum samskiptum við dómara og heldur svo auðvitað liðinu saman á ögurstundum. Hann stjórnar líka spilinu og velur leikkerfi og peppar í leikhléum.
Þessi kosning getur farið fram leynilega eða með því að stungið er upp á einhverjum og kosið á milli þeirra.
Hér er tengill á ansi góðan pistil um reglur á Öldungamótum - og takið sérstaklega eftir reglunum um skiptingar - það er því mikilvægt að vera búin að huga vel að þeim í fyrir hvern leik - hverjir eru út af og við hvern er skipt.
Gott er í upphafi móts að fyrirliði tali við dómara og fari yfir helstu reglur ef eitthvað er ekki ljóst.
No comments:
Post a Comment