
16.1 Leiksvæði:
Hvort lið verður að leika á sínum vallarhelmingi og tengdu leiksvæði. Þó má sækja knöttinn út
fyrir hindrunarlausa svæðið.
16.2 Seiling yfir netið:
16.2.1 Þegar leikmenn eru í hávörn mega þeir snerta knött handan netsins svo fremi
snertingin trufli ekki leik andstæðinganna áður en eða á meðan þeir leika knettinum
(19.3).
16.2.2 Eftir að leikmaður hefur slegið knöttinn í átt að vallarhelmingi mótherjanna er
leyfilegt að seilast yfir netið hafi hann snert knöttinn fyrst á sínum vallarhelmingi.
16.3 Farið undir netið:
16.3.1 Leyfilegt er að fara undir netið án þess að trufla leik mótherja.
16.3.2 Að snerta völl mótherjanna:
a. Leyfilegt er að snerta völl mótherjanna með öðrum eða báðum fótum ef einhver
hluti þeirra er á eða yfir miðlínunni.
b. Leyfilegt er að snerta völl andstæðinganna með öllum öðrum líkamshlutum, trufli
það ekki leik þeirra.
16.4 Netsnerting:
16.4.1 Netsnerting er ekki leikbrot nema hún trufli leikinn;
16.4.2 Þegar leikmaður hefur snert knöttinn má hann snerta netsúlur, víra eða hvern þann
hlut sem verkast vill utan spíranna (9 m) trufli hann ekki leikinn.
16.4.3 Þegar knötturinn er sleginn í netið svo fast að það snertir mótherja er það ekki
leikbrot af hans hálfu.
16.5 Leikbrot við netið:
a. Þegar leikmaður snertir knött eða mótherja á leiksvæði mótherjanna áður en eða á
meðan þeir undirbúa sókn (16.2.1).
b. Þegar leikmaður fer undir netið og truflar leik mótherjanna (16.3.1).
c. Þegar leikmaður snertir völl andstæðinganna ólöglega (16.3.2).
d. Þegar leikmaður snertir netið eða spíru og er, eða hefur verið, að leika knettinum
eða truflar leikinn.
16.6 Leikmaður truflar leik andstæðinganna þegar hann m.a. snertir efri jaðar netsins eða efstu
90 sm spíranna þegar hann leikur knettinum, styður sig við netið þegar hann leikur knettinum,
eða nær forskoti á andstæðingana, eða hindrar þá í að leika knettinum löglega
Sem sagt snertum bara aldrei netið og verum ekkert að þvælast undir því heldur ;)
No comments:
Post a Comment