Wednesday, April 18, 2012

Blakreglur - uppgjöf

Á síðustu æfingu voru umræður um hvort það  mætti láta bolta detta og byrja svo upp á nýtt. Samkvæmt þessu má það ekki - því ef boltinn lendir í gólfinu er uppgjöfin ónýt:


17.5 Framkvæmd uppgjafar:
17.5.1 Á því andartaki sem knötturinn er sleginn eða þegar stokkið er upp til að slá hann
má uppgjafarmaður hvorki snerta völlinn, að endalínu meðtalinni, né gólfið utan
uppgjafareits. Eftir uppgjöfina má hann lenda inni á vellinum eða utan uppgjafareits.
17.5.2 Knötturinn skal sleginn áður en átta sekúndur eru liðnar frá því aðaldómari gefur
merki.
17.5.3 Uppgjöf sem framkvæmd er áður en aðaldómari heimilar er ógild og skal
endurtekin.

17.5.4 Knötturinn skal sleginn með annarri hendi eða einhverjum hluta handlegg og eftir
að honum hefur verið kastað upp eða sleppt og áður en hann snertir gólfið.

Venjið ykkur á að standa um fet frá endalínu - í uppgjöf myndast kraftur í líkamanum sem oftar en ekki ýtir ykkur fram á við - lengd uppgjafa okkar er sjaldnast svo stutt að þetta fet skipti máli en stígum við á strik missum við stigið og sendingaréttinn.


No comments: