Saturday, May 5, 2012

Uppgjör og næsta tímabil



Ekki er ráð nema í tíma sé tekið ;) Oft er gott að henda hugmyndum á loft í lok tímabils  - þá eru þær ferskar - margt gleymist yfir sumarið.





Hvernig væri að hafa þessar nefndir starfandi næsta tímabil?

Búninganefnd

Komið hefur fram tillaga um að Hvöt verði með fylgihluti á næsta Öldung - nefndin sér um þau mál!
Tekur saman pantanir að hausti, utanyfirgalla, keppnistreyjur og buxur og kemur til stjórnar, sér um að þvo brúsana, fyrirliðatöskur, hreinsun og geymslu á aukabúningum. Og að allt þetta skili sér á mótin.

Keyptur verði kassi undir dót frá blakinu og hann geymdur (í íþróttahúsinu?) og í honum verði brúsargrindur, brúsar, töskur (og allt sem í þeim á að vera) og auka búningar.

Í töskunni á að vera (og er):

Instant kælipokar x2
Hitakrem
Kælisprey
Plástrar
Fiðrildi til að líma litla skurði
Ibufen
Tape
Teygjubindi
Keppnisspjald

Gæta þarf að því að ekkert vanti í töskuna og fyllt sé á - sé eitthvað notað.
Nótu skilað til gjaldkera sem greiðir viðkomandi f. kaupin.

Skemmtinefnd

Hennar verkefni er að halda utan um jólagiggið og vorhófið - og hvað annað sem henni dettur í hug til að gleðja mannskapinn. Sönghefti, myndbandagerð, upptökur og annað.

Stjórn

Liðsstjóri, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Liðsstjóri sér um skráningar á mót og stýrir starfinu með stjórn.
Liðsstjóri heldur utan um boð liða um að koma eða boðum til Hvatar um leiki. Hann sér um leikjaskipulag á mótum Hvatar og hefur samband við mótanefndir vegna annarra móta. Liðsstjóri er talsmaður liðsisns út á við og skilar ársskýrslu til Hvatar. Liðsstjóri sér einnig um þjálfaramál og skipulag æfinga í samráði við þjálfara og stjórn.

Stjórn ber ábyrgð á húsnæðismálum varðandi t.d. Öldung.

Verkefni næstu stjórnar er t.d. að ákvarða æfingagjöld, fjölda þjálfaraæfinga, leggja línurnar f. mót vetrarins, ákvarða reglur um hvenær og hvort skuli verða greiðslufall hjá liðsmanni, t.d. vegna meiðsla, veikinda eða forfalla annarra - eða hvort allir liðsmenn greiði æfingagjöld og það sé svo þeirra að mæta eða mæta ekki, eða hætta ella. Mikilvægt er að gæta jafnræðis í þessum málum og samræma hvaða háttur er hafður á.

Og svo passar stjórnin upp á allar hinar nefndirnar ;)

Móta og veitinganefnd

Sér um og heldur utan um með stjórn, haustmót Hvatar og Súpumót Hvatar. Veitingar, undirbúning á vettvangi og stýrir frágangi. Auðvitað leggjumst við á eitt um að aðstoða eins og við höfum gert.

Alice Petersen er fulltrúi blaknefnd HSK - 
þannig að við erum orðin málsmetandi blaklið á Suðurlandi!

Mér finnst persónulega að stjórn blaksins ætti að mæta á Aðalfund Hvatar. 

Wednesday, April 25, 2012

UMF Hvöt tekur yfir Tröllaskagann 2012

Dagskrá mótsins

Það er all að ske!

Við bomsurnar á Súbbanum náum í mótsgögnin á Sigló.

Hér má finna dagskrána!

Breyting á umsókn HK - breyttur tími

Þeir hjá HK eru nú komnir með breytta dagsetningu - eru með þetta síðustu dagana í apríl.

Smellið hér - og svo á merki liðanna til þess að kynna ykkur fyrirkomulagið.

Til umsjóanrliða


Umsjón á leikjum

Mikilvægt er fyrir liðin að skoða vel hlutverk þeirra þegar kemur að umsjónarleikjum. Skoðið vel textann (getum ekki sett myndirnar inn) hér að neðan en myndirnar er hægt að sjá á heimasíðunni sem og í mótsblaðinu.
Orðsending til umsjónarliða

Umsjónarlið útvega tvo línuverði, ritara og stigavörð.
Umsjónarlið sjá um að skrifa á spjöld nöfn þeirra liða sem eru að fara að spila og færa þau á milli hrina. Liðið sem er skráð á undan á leikjaplani skal vera á velli sem er ritara á vinstri hönd og á það fyrstu uppgjöf í leiknum og eins í oddahrinu ef til hennar kemur.
Umsjónarlið skulu vera tilbúin til starfa tímanlega. Tímasetningar leikja eru til viðmiðunar. Leikir hefjast strax og næsta leik á undan lýkur burtséð frá því hvort auglýstur leiktími er kominn. Umsjónarlið skal láta keppnisstjóra viðkomandi húss vita ef leikur getur ekki hafist af því að dómari eða keppnislið er ekki mætt.

Línuverðir skulu gefa skýr merki.
Sé knöttur inni skal benda með flagginu niður og inn á völlinn (mynd 1).
Sé knöttur úti skal lyfta flagginu hátt upp í loft (mynd 2).
Sé snerting við hávörn eða leikmann skal línuvörður lyfta flagginu upp og setja lófa hinnar handar ofan á það(mynd 3).
Snerti knöttur netspíru, skeri framlengda línu hennar eða fari utan í hana skal línuvörður veifa flagginu og benda á netspíru. Snerti leikmaður sem er í uppgjöf endalínu vallarins í uppgjöf skal línuvörður veifa flagginu og benda á endalínur vallarins (mynd 4).

Treysti línuvörður sér ekki til þess að taka ákvörðun krossleggur hann handleggi á brjóst (mynd 5).

Sunday, April 22, 2012

Bílar norður

Jæja hvernig ætlar hver og ein okkar að komast norður - er ekki rétt að setja það niður á blað?

Friday, April 20, 2012

Kosning fyrirliða

Á morgun fyrir mótið þurfa bæði liðin að kjósa sér fyrirliða. Fyrirliði er mikilvægur sérstaklega þegar ekki er þjálfari á línunni. Hann er sá eini sem má tala við dómarann á meðan á leik stendur og því stjórnar hann inn á skiptingum, leikhléum og ræðir við dómara og biður um útskýringar á dómum. Hann sjórnar með öðrum orðum samskiptum við dómara og heldur svo auðvitað liðinu saman á ögurstundum. Hann stjórnar líka spilinu og velur leikkerfi og peppar í leikhléum.

Þessi kosning getur farið fram leynilega eða með því að stungið er upp á einhverjum og kosið á milli þeirra.

Hér er tengill á ansi góðan pistil um reglur á Öldungamótum - og takið sérstaklega eftir reglunum um skiptingar - það er því mikilvægt að vera búin að huga vel að þeim í fyrir hvern leik - hverjir eru út af og við hvern er skipt.

Gott er í upphafi móts að fyrirliði tali við dómara og fari yfir helstu reglur ef eitthvað er ekki ljóst.






Kjörís - Hvöt 1 - 2. deild



Gult er umsjón
Bleikt er leikir

Hvöt 2 - 3. deild

Blátt er umsjón
Bleikt er leikir

Wednesday, April 18, 2012

Vörn á móti smassi af kanti


Blakreglur - uppgjöf

Á síðustu æfingu voru umræður um hvort það  mætti láta bolta detta og byrja svo upp á nýtt. Samkvæmt þessu má það ekki - því ef boltinn lendir í gólfinu er uppgjöfin ónýt:


17.5 Framkvæmd uppgjafar:
17.5.1 Á því andartaki sem knötturinn er sleginn eða þegar stokkið er upp til að slá hann
má uppgjafarmaður hvorki snerta völlinn, að endalínu meðtalinni, né gólfið utan
uppgjafareits. Eftir uppgjöfina má hann lenda inni á vellinum eða utan uppgjafareits.
17.5.2 Knötturinn skal sleginn áður en átta sekúndur eru liðnar frá því aðaldómari gefur
merki.
17.5.3 Uppgjöf sem framkvæmd er áður en aðaldómari heimilar er ógild og skal
endurtekin.

Blakreglur - Leikmenn við netið


16 Leikmenn við netið:
16.1 Leiksvæði:
Hvort lið verður að leika á sínum vallarhelmingi og tengdu leiksvæði. Þó má sækja knöttinn út
fyrir hindrunarlausa svæðið.
16.2 Seiling yfir netið:
16.2.1 Þegar leikmenn eru í hávörn mega þeir snerta knött handan netsins svo fremi
snertingin trufli ekki leik andstæðinganna áður en eða á meðan þeir leika knettinum
(19.3).
16.2.2 Eftir að leikmaður hefur slegið knöttinn í átt að vallarhelmingi mótherjanna er
leyfilegt að seilast yfir netið hafi hann snert knöttinn fyrst á sínum vallarhelmingi.
16.3 Farið undir netið:
16.3.1 Leyfilegt er að fara undir netið án þess að trufla leik mótherja.
16.3.2 Að snerta völl mótherjanna:
a. Leyfilegt er að snerta völl mótherjanna með öðrum eða báðum fótum ef einhver
hluti þeirra er á eða yfir miðlínunni.
b. Leyfilegt er að snerta völl andstæðinganna með öllum öðrum líkamshlutum, trufli
það ekki leik þeirra.
16.4 Netsnerting:
16.4.1 Netsnerting er ekki leikbrot nema hún trufli leikinn;
16.4.2 Þegar leikmaður hefur snert knöttinn má hann snerta netsúlur, víra eða hvern þann
hlut sem verkast vill utan spíranna (9 m) trufli hann ekki leikinn.
16.4.3 Þegar knötturinn er sleginn í netið svo fast að það snertir mótherja er það ekki
leikbrot af hans hálfu.
16.5 Leikbrot við netið:
a. Þegar leikmaður snertir knött eða mótherja á leiksvæði mótherjanna áður en eða á
meðan þeir undirbúa sókn (16.2.1).
b. Þegar leikmaður fer undir netið og truflar leik mótherjanna (16.3.1).
c. Þegar leikmaður snertir völl andstæðinganna ólöglega (16.3.2).
d. Þegar leikmaður snertir netið eða spíru og er, eða hefur verið, að leika knettinum
eða truflar leikinn.

Siglufjarðarvegur

Vefmyndavél :)

Ólafsfjarðarvegur - norður, vefmyndavél

Saturday, April 7, 2012

Drög og athugið Drög að liðum :)


Hvöt 1 niður um deild - Lokaröðun í deildir


Fjöldi liða og endanleg deildarskipting

Nú er kominn endanlegur fjöldi liða á mótinu okkar. Alls munu 142 lið taka þátt á mótinu, þar af 99 kvennalið og 43 karlalið. Hér að neðan er hægt að sjá endanlega deildarskiptingu en það þurfti að gera nokkrar breytingar frá drögunum. Við viljum þakka öllum fyrir athugasemdirnar sem við fengum.

1.deild karla (7 lið): Massablak-Stjarnan-Fylkir-Hrunamenn-Þróttur N-Hamar-KA 96.

2.deild karla (7 lið): KA K lið-Rimar A-Þróttur R-ÍS A-Völsungur-Snörtur 1-Hyrnan.

3.deild karla (7 lið): Broskarlar-Afturelding-Höttur-UMFG-Öðinn/Skautar-Rimar Á-ÍS B.

4.deild karla (8 lið): TUA-Skellur-Verkís-Steinunn gamla-Sindri-MassaJamm-Laugdælir-KA Ö
.
5.deild karla (8 lið): Fylkir/Verkís-Snörtur FC 8-Styrmir-Þór arinn-ÍFB-Leiknir-Hyrnan B-Snörtur FC
 Partý team

6.deild karla (6 lið): ÍBV-Huginn (öðlingalið) og Óðinn/Skautar-Stór Stjörnur 1-Hyrnan-Blakendur (Ljúflingalið).

1.deild kvenna (7 lið): 
HK A-Þróttur R 1-ÍS-Þróttur N 1-Fylkir A-Eik-HK Utd 1.

2.deild kvenna (7 lið): 
Völsungur A-Afturelding 1-Stjarnan A-ÍK A-Krækjur A-Álftanes A-Súlur A.

3.deild kvenna (7 lið): 
Skautar-KA Freyjur A-Bresi A-Hamar-Höttur-Völsungur B-UMFG.

4.deild kvenna (7 lið): 
Stjarnan B-Reynir A-Fylkir B-Þróttur N 2-Honey Bees-HK Utd 2-AFturelding 2.

5.deild kvenna (7 lið):
 Sindri-Lansinn A-Skellur-Bresi B-Völsungur C-Rimar A-Álftanes B.

6.deild kvenna (7 lið): 
ÍK B-HK B-Skautar B-Afturelding 3-Snæfell-Valur Reyðarfirði-Dímon.

7.deild kvenna (7 lið): 
Eik Úr-Leiknir-Súlur B-Höttur 2-Laugdælur-Þróttur R 2-Hvannir.

8.deild kvenna (7 lið): 
HK Wunderblak A-KA Freyjur B-Víkingur R-Hrafnkell Freysgoði-UMFG B-KMK/Styrmir-Afturelding 4.

9.deild kvenna (8 lið): 
Grótta-Krækjur B-Álftanes C-Lansinn B-Stjarnan C-Rimar B-Leiknir B-Fylkir C.

10.deild kvenna (10 lið): 
Skutlur A-Völsungur D-Garpur-HK Wunderblak B-Höttur 3-Þróttur R b-HK Gyðjur-Völsungur-Súlur 4-KA Freyjur C (3 síðustu liðin eru öðlingalið).

11.deild kvenna (8 lið):
 Þróttur N 3-Fylkir/Austri A-Hamar B-Mývetningur-Laugdælur 2-Eik B-Víkingur R B-ÍBV.

12.deild kvenna (7 lið): 
UDN-Hvöt-Völsungur E-Skutlur B-Fylkir/Austri B-HK Leðurblökur A-Súlur 3.

13.deild kvenna (10 lið): 
Hvöt 2-ÍBV 2-Zeturnar-Dalalæður-Fjaðrirnar-Birnur-Bjarkir-Krákurnar-Grótta 2-Krækjur C.

Monday, April 2, 2012

Aukalokahófið :)

Það var uppselt á aðalhófið - þess vegna var bara búið til annað fyrir okkur í Hvöt (enda aðal sko ;)) - já og fleiri. Það kostar 5.500 inn á það - hér koma upplýsingarnar um það:


Eins og fram hefur komið er orðið uppselt á lokahófið, en vegna mikillar eftirspurnar eftir miðum þá hefur verið ákveðið að setja upp annað lokahóf í Kaffi Rauðku (www.raudka.is), þar sem þeir sem ekki náðu að tryggja sér miða á aðal-lokahófið, geta komið saman og borðið góðan mat og skemmt sér fram að balli.

Innifalið í verðinu er matseðill, rútuferð og miði á ballið. Miðaverð er 5.500.- kr.

Mörg lið skráð til leiks

Í fyrra voru 126 lið skráð til leiks á Öldung og þótti einstakt, margir töldu það vera vegna frábærrar staðsetningar. Í ár verða liðin 146 og þar af 100 kvennalið - og við eigum tvö þeirra, ásamt Hrunakonum - sem gera okkur það kleift að fara svona margar!

Í fyrra leikum við tvo leiki á hverjum degi og spilið hófs 11:15 flesta dagana. Þá voru sex lið í deild en nú eru þau 8 í 11. deild og 10 í 13. deild þannig að það er um að gera að pakka svolitlu niður af kælispreyi ;)

Í fyrra vorum við með þessum í 11. deild - 6 lið í deild:
Þrótti Rb
HK Leðurblökum a - víxluðu þær við Gyðjurnar? Spiluðum við ekki við þær?
Austra Raufarhöfn a
Hamri B
Aftureldingu 5
Völsungi E

Unnum við ekki Hamar, Leðurblökur og Völsung?
Sumt var nú tæpt en annað heldur erfiðara :)

Í ár eru það þessi lið sem Hvöt A spilar við í 11. deild - 8 lið:

HK Wunderblak B-
Höttur 3-
Þróttur N 3-
HK Gyðjur-
Fylkir/Austri A-
Víkingur R B-
Hamar B-
Hvöt A


Í ár spilar B liðið í 13. deild við - 10 lið!




ÍBV 2-
Zeturnar-
Dalalæður-
Fjaðrirnar-
Birnur-
Bjarkir-
Krákurnar-
Grótta 2-
Krækjur C
Hvöt 2-


Ef þið skoðið 10. deildina þá sjáið þið að A liðið hefur að miklu að stefna að halda sér upp og jafnvel komast í 10. deildina! Sama er að segja um B - liðið. Hörkukeppni framundan!



Drög að deildarskiptingu

Hér eru deildirnar komnar fyrir Öldung.

Ég fyrir mitt leyti er MJÖG ánægð með þetta, við erum í deild með Hamri B og fleirum góðum með Aliðið okkar og B liðið okkar fær að spreyta sig við lið sem það ætti að hafa í fullu tré við. Við förum með sterkara lið og aðeins sterkara lið á á Öldung í ár. Stefnum á að vinna deildirnar ;). Þetta verður svooo skemmtilegt - og svo eru Hrunamenn náttúrulega í 1. deild eins og frægt er orðið. Því miður eru þó hvorugir þjálfaranna okkar með en þeir eru uppteknir við annan starfa. Svona getur þetta verið!


Hér að neðan er hægt að sjá drög að deildarskiptingunni. Lið geta send öldungi (öldungur@blak.is) athugasemdir en þær þurfa að berast í síðasta lagi á þriðjudagskvöldið (03.apríl).

1.deild karla: Massablak-Stjarnan-Fylkir-Hrunamenn-Þróttur N-Hamar-KA 96

2.deild karla: KA K lið-Rimar A-Þróttur R-ÍS A-Völsungur-Snörtur 1-Hyrnan

3.deild karla: Broskarlar-Afturelding-Höttur-UMFG-Óðinn/Skautar-Rimar Á-ÍS B

4.deild karla (8 lið): TUA-Sindri-MassaJam-Skellur-Þróttur N 2-Verkís-Laugdælir-KA Ö

5.deild karla (10 lið): Fylkir/Verkís-ÍFB-Leiknir-Snörtur FC 8-Styrmir-Steinunn gamla-Fylkir/Álftanes-Snörtur FC Partý team-Hyrnan B-Þór arinn

 Öðlingur/Ljúflingur (6 lið): ÍBV-Huginn-Hyrnan-Blakendur-Óðinn/Skautar-Stór Stjörnur

1.deild kvenna: HK A-Þróttur R 1-ÍS-Þróttur N 1-Fylkir A-Eik-HK Utd 1

2.deild kvenna: Völsungur A-Afturelding 1-Stjarnan A-ÍK A-Krækjur A-Álftanes A-Súlr A

3.deild kvenna: Skautar-KA Freyjur A-Bresi A-Hamar-Höttur-Völsungur B-UMFG

4.deild kvenna: Stjarnan B-Reynir A-Fylkir B-Þróttur N 2-Honey Bees-HK Utd 2-Afturelding 2

5.deild kvenna. Sindri-Lansinn A-Skellur-Bresi B-Völsungur C-Rimar A-Álftanes B

6.deild kvenna: ÍK B-HK B-Skautar B-Afturelding 3-Snæfell-Valur Reyðarfirði-Eik-Úr

7.deild kvenna: Dímon-Leiknir-Súlur B-Höttur 2-Laugdælur-Þróttur R 2-Hvannir

8.deild kvenna: HK Wunderblak A-KA Freyjur B-Víkingur R-Hrafnkell Freysgoði-UMFG B-KMK/Styrmir-Afturelding 4

9.deild kvenna: Grótta-Krækjur B-Álftanes C-Lansinn B-Stjarnan C-Rimar B-Leiknir B

10.deild kvenna (10 lið): Fylkir C-Skutlur A-Völsungur D-Garpur-Þróttur R B-Eik B-Laugdælur 2-Súlur 4-KA Freyjur C-Völsungur (3 síðustu liðin eru öðlingalið)

11.deild kvenna (8 lið): HK Wunderblak B-Höttur 3-Þróttur N 3-HK Gyðjur-Fylkir/Austri A-Víkingur R B-Hamar B-Hvöt A


12.deild kvenna (8 lið): Völsungur E-Mývetningur-ÍBV-Skutlur B-Fylkir/Austri B-HK Leðurblökur A-Súlur 3-UDN

13.deild kvenna (10 lið): Hvöt 2-ÍBV 2-Zeturnar-Dalalæður-Fjaðrirnar-Birnur-Bjarkir-Krákurnar-Grótta 2-Krækjur C

Monday, March 26, 2012

Apríl er stórundarlegur ;)

Jæja elskurnar - það er allt svo skrítið í apríl - páskar, sumardagurinn fyrsti og hvur veit hvað - ég hef sett upp dagskrá - þjálfararnir samþykkt hana og ég hef ekki heyrt athugasemdir frá Íþróttahúsinu.

Það eru auðvitað margar í vinnu þá daga sem ég hef sett á æfingar en ég treysti því að þær fari út að hlaupa og hoppi nokkrum sinnum upp á stól til að æfa blokkina  - we can do it!

Það er fullt hægt að gera heima.

Sjáumst hressar

Monday, January 16, 2012

STÓRA helgin að baki

Það þótti mörgum í mikið ráðist að skrá Hvöt á tvö mót helgina 14. og 15. janúar - og víst er að satt reyndist því margir skráðu ekki einu sinni lið sín á eitt mót! Laugarvatnsleikarnir féllu niður en Bjössi var svo frámunalega almennilegur að stefna okkur, Dímoni og Laugdælum til sín á Laugarvatn til þess að spila þrátt fyrir það. Dímon heltist úr lestinni - og því voru það ,,bara" Laugdælur og Hvatarínur sem mættu til leiks. Sem sagt meira en margur gerði :). Þar fengum við að spila við A og B lið Laugdæla og gekk það vel. Þær sem mættu voru Íris, Brúney, Eva, Hugrún, Guðbjörg og Alice og spiluðu þær Alice og Guðbjörg sem sjöttu manneskjur með Laugdælum A einnig. Þannig fékkst dýrmæt leikreynsla fyrir stóra mótið - HK trimmið sem var daginn eftir.

Hvatarínurnar mínar þurftu að leggja snemma af stað - áttu fyrsta leik, en ég hafði samband við HK og benti þeim á að e.t.v. væri nú sniðugra að láta einhver lið nær byrja að spila - Heiðbjört benti okkur á að slíkt væri hægt að setja í athugasemdir. Við munum það framvegis en ég vissi svo sem ekkert í minni haus - ekki hvenær þetta byrjaði eða endaði - hélt það yrði kannski um 10 og fannst það ekki svo snemmt.

Siggi tilkynnti komu sína og honum var útvegaður einkabílstjóri - en hvort sem það var tilhugsunin um mótið eða ennað lagðist kappinn í rúmið og komst ekki - en takk Siggi fyrir að bjóðast til að koma. Það var okkur mikils virði. Baldur var forfallaður og með vottorð :).

Eftir að Fagrilundur fannst lá leiðin bara upp á við hjá Hvöt - liðið náði frábærum árangri og klárlega í flotta reynslu. Alice hélt hópnum saman í gegnum þykkt og þunnt - peppaði og hvatti eins og henni er einni lagið og allar lögðust stelpurnar á eitt um að gera daginn skemmtilega fyrst og fremst og einnig árangursríkan. Úrslitin skipta ekki öllu máli en assgoti er gaman þegar þau eru svona góð samt :).

Ingveldur sat á Akureyri - algjörlega ófær um að læra nokkurn skapaðan hlut heldur hékk á blak.is og í símanum við Alice og þóttist einhver áhrif hafa - amk hughrif :). Margir leikir fóru 1-1 og því var mikilvægt að vinna þær hrinur sem unnust með miklum mun og það gerður Hvatarínurnar og urðu efstar þriggja liða sem voru með jafn mörg stig - og mörg þessara liða unnu okkur á Öldung þannig að þetta eru bara frábærar fréttir. Það var enda þéttur hópur sem mætti á svæðið:

Hugrún, Brúney, Anna Margrét, Bryndís, Eva Björk, Alice, Rut, Hófí og Guðbjörg lék síðustu tvo leikina.

Höldum áfram, verum duglegar að mæta á æfingar, bætum þrekið og líkamlegt atgervi með skiplagðri hreyfingu - en fyrst og fremst höfum gaman. Við erum ekki neitt - ef við skemmtum okkur ekki saman.

Ingveldur stefnir á -40 kíló og lofar sterkri innkomu - einhvern tímann :).



Hvöt - Afturelding - 13 - 21 / 17 - 21

Hvöt - Grótta 21 - 12 / 21 - 11

HK Wunderblak e - Hvöt 21 - 13 / 15 - 21 (frábær viðsnúningur!!!!)

Hvöt - Afturelding D 21 - 17 / 19 - 21 (hörkuslagur!)

Leðurblökur - Hvöt 9 - 21/ 11 - 21 (okkar vinalið!)

Einn leikur tapaðist, tveir leikir unnust og jafnt í tveimur. Flott skor og mikið skorað - en þó ekki síður - góð vörn því það var það sem fleytti okkur í annað sætið :)

Friday, January 13, 2012

Í upphafi keppnishelgar



Kæru Hvatarínur

Nú er stór helgi framundan hjá okkur og margt um að hugsa. Ég er afskapleg stolt af því að Hvöt getur sent lið bæði á Laugarvatn og á HK Trimm, en ég sé að það eru ekki mörg lið að austan sem mæta á Trimmið – t.d. ekki Laugaland, ekki B lið Hamars, né Dímon. Þannig að það er hreinn heiður að fá að senda ykkur á mótið og ná þannig í dýrmæta reynslu. Úrslitin skipta ekki öllu máli – það er að vera saman, og vinna saman að sameiginlegu markmið.

Blak er liðsíþrótt og þar gildir að hver og ein muni að liðið verður sterkara ef við stöndum saman og hugsum um heildina. Góð móttaka tryggir góðan bolta númer tvö sem þýðir að smassið sem á að koma á eftir – er líklegra til þess að vera árangursríkt. Uppspilari er lykilmaður í hverju liði – mikið er komið undir því að hann sé útsjónarsamur og lesi leik síns liðs vel og sjái hvar best er að senda bolta þrjú þannig að staða fjögur og sex eigi sem besta möguleika á því að koma andstæðingunum á óvart. Góð móttaka er að sjálfsgögðu besta tryggingin fyrir góðri sókn – góð sókn er móttaka, uppspil, og árangursríkt smass.

Við þurfum að lesa boltann vel og vera viðbúnar því að hann komi ekki alltaf á þann stað sem við teljum heppilegastan – heldur ætlum við að vera viðbúnar flestu - sendingar/spil heppnast ekki alltaf þrátt fyrir góðan vilja. Boltinn er ekki á röngum stað – heldur við.  Mikilvægt er að við snúum í átt að boltanum – og ef spilið er á okkar helmingi  þá fylgjumst við með því spili en snúum ekki að velli andstæðingsins fyrr en boltinn er farinn yfir netið.  Eftir að leikmaður hættir í hávörn þarf hann að vera snar í snúningum og viðbúinn að taka við bolta frá sínum eigin liðsfélögum – hann er jú að koma þaðan. Gott er að fara tvær í hávörn – mynda vegg en þá þarf líka að vera snör að fara aftur á sinn stað – við megum ekki mikið hlaupa úr stöðunum  okkar  þó freistandi sé en þegar það gerist þarf einhver að dekka það svæði á meðan.  Vegalengdin er ekki mikil á milli sex stúlkna á vellinum – og þó einhver sé hraðari en önnur er mikilvægt að fara ekki langt frá ,,sinni“ stöðu, nema vera því hraðari til baka. Munum líka að dekka vel svæðið á milli hávarnar og sóknarlínu - látum ekki bolta detta dauða niður. Hávörnin tekur ekki bolta sem detta fyrir aftan hana - en hins vegar er mikilvægt að vera ekki í hávörn nema þannig spil sé í gangi hinum megin.

Hávörn nýtist þegar hávörn er á móti – eða þegar bolta er blakað eða tekinn með fingurslagi á velli andstæðingsins – ef andstæðingar taka bolta með fleyg er líklegra að hann sé hærri og lengri en hávörn ræður við  - þá er bakkað og reynt að verjast honum á annan hátt.

Uppspilari Á bolta tvö og verður að vera dugleg að hrópa næsti ef hún ætlar ekki í hann- það þýðir þó ekki að hinar standi bara hjá því auðvitað tökum við bolta sem nánast lendir á nefinu á okkur! Við hinar þurfum að vera duglegar að hrópa nafn okkar – tala saman – vinna saman sem heild og alltaf að hugsa um að bolti 1 og 2 sé þannig að gott sé að taka á móti honum en bolti þrjú á náttúrulega að vera hreinn óþverri J. Hugum að því að nýta fingurslag vel - við dettum í það að ofnýta fleyginn - við ráðum betur við að stýra spilinu ef við notum fingurslag og MUNUM AÐ SPILA HÁA BOLTA, þá er svo miklu auðveldara að vera til - og það er jú það sem við viljum - auðvelda okkur lífið. Nóg er nú samt ;)

Ekki klikka á uppgjöfum – það er miklu flottara að sjá boltann fara yfir en lenda í netinu eða utan vallar – það þýðir þó ekki að uppgjafir eigi að vera títlulegar og ragar – öðru nær – reynum einmitt að dúndra á þær og þær ykkar sem eigið þessar flottu uppgjafir endilega notið þær – en tilraunastarfssemi er betra að geyma til æfinga J.

Síðast en ekki síst spilum við blak til þess að hafa gaman af. Við stöndum í þessu saman, við erum frábærar að standa í þessu yfirleitt 

– við höfum allar okkar bresti, erum misgóðar, en við erum allar saman í Hvöt og þar er það léttleikinn sem ræður ríkjum. Okkur sinnast, við tökum rangar ákvarðanir – við erum mistæktar – allar! En þð er allt í lagi því það er gaman – kannski ekki alltaf og áreiðanleg misgaman – en þegar upp er staðið eru það góðu minningarnar sem gerir þetta svo skemmtilega heilsubót (og hnékiller).

Ég er svo stolt af ykkur að fara – nýtið laugrdaginn vel – setjist saman og ræðið um leikinn eftir á – hvað má bæta og hvernig við bætum það. Ekki taka hlutunum persónulega – og vöndum gagnrýni okkar – rýnum til gagns. Verðum betri – stefnum á öldung 2012!

Og þangað til annað finnst:

Skemmtilegt skemmtileg – sólin sólin!

Baráttukveðjur

Helgin 14. og 15. janúar

Um helgina er dagskráin þessi:


Laugardagur

Laugarvatn klukkan 13:00
Leikið við Laugdælur - amk 2 leikir.
Sund og pottur á eftir.
Mæting:

Iris SvavarsdóttirGuðjón ÁgústssonAlice PetersenHugrún Sigurðardóttir,Eva Björk KristborgardóttirBruney Bjarklind og Guðbjörg Viðarsdóttir.


Guðbjörg er liðsstjóri

Sunnudagur

HK - Trimm Fagralundir
Mæting:
Alice, Anna Margrét (?), Brúney, Bryndís, Eva Björk, Hófí, Hugrún og Rut.

Gott væri ef fleiri gætu mætt!

Alice er liðsstjóri