
Jæja stúlkur - takk fyrir æfinguna, hún var náttúrulega algjört afbragð nú sem fyrr.
Ég held þetta sé í fyrsta sinn sem við náum því að vera heilar átta. Það náttúrulega má ekki hætta fyrr að ná mannskapnum.
Gott að fá Bergþóru og við bíðum enn eftir Silju sem hefur mikið að gera. Vilborg hlýtur að ná áttum bráðum og mæta. Enda veitir okkur ekkert að liðsstyrknum.
Á æfingunni fór fram leynileg kosning um hver ætti skilið framfarabikarinn að þessu sinni og sú heppna er.....
SIGURLÍN GARÐARSDÓTTIR
fyrir ótrúlega snúnar uppgjafir í orðsins fyllstu merkingu. Andstæðingar hennar máttu sín einskis og lutu í duftið í hverri uppgjöfinn á fætur annarri!
Liðsstjóranum þótti uppgjafirnar hjá Elfu líka glæsilegar og gefa mörg stig!
Nú er vigtun hjá þeim sama liðsstjóra í dag og það er spurning hvort við fáum karlþjálfara á eina æfinguna í kringum áramótin eður ei ;-).
Sem minnir mig á það - passið að raða ekki jólaönnunum á eftirmiðdag á fimmtudögum því okkur veitir sannarlega ekki af spriklinu í þeim önnum öllum saman.
Hvers vegna æfum við blak?
Er ekki tilvalið að svara því í comments?
Þegar þið ,,commentið" þá farið þið í 0 comments eða 1 comments(svör) og póstið og ýtið síðan á appelsínugula hnappinn. Best er að velja bara Anonymous nú eða ef þið eigið Google aðgang þá notið þið hann.
Sjáumst og heyrumst ekki síðar en á fimmtudag
2 comments:
Hæ stelpur.
Ég er svo montin núna að þið getið varla imyndað ykkur. Að vera uppgjafari dagsins er sko ekki leiðinlegt. Takk takk.
Vitið þið að Gissur okkar í Sunnulæk spilaði blak og þjálfaði líka einu sinni.Bara að segja ykkur þetta. Sjáumst hressar á fimmtudaginn það vildi ég að hann væri á morgunn.Betra að æfa sig og hreyfa heldur enn að sitja og drekka bjór. ( ég drekk varla bjór) hm hm.
Heyrumst Kveðja Elva Gull.
Ég æfi blak því það er svo ótrúlega skemmtilegt ;-) Vissi nú eiginlega ekki að það væri svona gaman. Auk þess gefur það mér fjölbreytni í æfingadagskránna mína og ég næ púlsinum hvergi hraðari í jafn langan tíma og í blaki. Sérstaklega þegar við erum ekki fleiri sem mætum. Ég vona að það gangi vel hjá ykkur að safna mannskap! Sjáumst á morgun ef geðvonska og hælverkur verður ekki búið að drepa mig áður ;-)
Post a Comment