Friday, October 26, 2007

Allt er fjórum fært ;-)

Tala nú ekki um ef þær eru orðnar fertugar í ofanálag. Veit nú svo sem ekkert um það hvort þær eru orðnar fertugar hetjurnar sem mættu á æfingu í gær. Við náttúrulega verðum að fjölga okkur eitthvað stúlkurnar ;-).



Ingveldur á hælnum, Elva, Anna Margrét og Svala mættu í gær og æfðu uppgjafir, smöss og svona smá boltafimi - þessi líka fína æfing og púlsinn fór upp hjá okkur flestum - nema kannski Elfu svölu - það þarf að láta hana hlaupa extra hringi extra hratt ;-)



Það var svo sem ekkert gagn að mér - en ég fattaði sniðugt - tók 700 metrana í lauginni semíupphitun og fór svo í blak - minna álag á hælinn ;-). Maður er alltaf að fatta eitthvað nýtt en það er nú annað mál.



Næsta æfing er eftir vetrarfrí á Selfossi og Ljósuborg og nú er að heyrja á: Sigrúnu Sighvats, Sigrúnu Hreiðars, Jóhönnu Einars, Jóhönnu Guðjóns, Vilborgu, Valgerði (held reyndar að hún sé á blaknámskeiði), Sædísi Harðar já og einhverjar fleiri sem ykkur dettur í hug. Við verðum að fá fleiri konur í þetta og hana nú.



Okkur hefur verið boðið að spila við þær á Laugarvatni og þá þurfum við nú að vera búnar að ná í lið - ha hu hummm?



Sjáumst hressar á fimmtudaginn!



Við fáum fjórar fáum því allar hvatningarverðlaun fyrir frábæra eljusemi við æfingarnar ;-)


No comments: