Friday, October 19, 2007

Æfingin skapar meistarann

Já ok - við þurfum kannski að æfa stökkin örlítið betur - ætli megi hafa trampólín?

Það var nú ekki mikill glæsibragur á liðsstjóranum á æfingunni í gær en verður ekki að taka viljann fyrir verkið. Það er þó spurning hvort ég veiti öðrum leyfi til þess að mæta EKKI á æfingu ef viðkomandi er einungis á öðrum fætinum ;-). En ég gat þó hent boltanum á loft í gríðarlegri smash æfingu - þeirri fyrstu á ferli sumra á æfingunni.



Kata benti á þá reglu að boltinn sé á lofti í uppgjöf amk ekki í hendi og það sló okkur nú aðeins útaf laginu - líklega hægt að æfa það betur ;-).



Við vorum ekki nema sjö á æfingunni - eiginlega bara sex eins og áður er minnst á. Það undirstrikar enn mikilvægi þess að smala fleiri konum. Það er hreinlega ekki hægt að segja nei við því að mæta á blakæfingar! Þetta eru þvílík forréttindi. Og maður þarf ekki að kunna neitt! Bara gera sitt besta!

No comments: