Monday, October 15, 2007

Blakreglur




Jæja stúlkur hér kemur lesskilningsverkefni ala grande:






Sérstaklega gaman að lesa um frelsingja eða hvað hann nú heitir. Nú svo þurfum við að huga að peysum - þurfum að vera í langerma bolum til að verja hendurnar ;-).

Ætti maður ekki að gá hjá Henson? Hverjir voru nú aftur litir Hvatar.... hmmmm
Eiturgrænn og hvítur ef ég man rétt. Alltaf verið svolítið svag fyrir honum...
Hér gæti verkefnilisti liðsstjórans verið:
Athuga með inngöngu í Hvöt og stöðu þeirra sem eru þá í öðru ungmennafélagi. Ég veit nú um einn sem er í stjón Selfoss en keppir fyrir annað ungmennafélag.

Nú ef við förum í Hvöt hvað græðum við á því (frítt í salinn og kannski búninga?) og hvað græða þeir á því... (lottótekjur og slíkt)

Athuga með net í þennan blessaða sal okkar.

Ná til fleiri kvenna - okkur vantar helst fjórar á hverja æfingu í viðbót - best væri að ná fullu liði sem mér sýnist vera 6 og þá þurfum við allt frá 8 á æfingu og niður í 4 þegar best lét eins og á síðustu æfingu.

Fá gestaþjálfara; hugmyndir eru um Gissur, Baldur og Jón.


Alltaf gaman að fá ferskt blóð - ekki það íþróttakennararnir okkar standa sig frábærlega og merkjanleg framför er hjá okkur öllum!


Á þessari síðu: http://www.volleyball.com/ er gardína - flettiflipi sem heitir Lowdown og þar eru ýmsar sniðugar upplýsingar - æfingar og sögur, góð ráð og slíkt. Spennandi ;-).


No comments: