Sunday, October 7, 2007

Síðasta æfing og framhaldið

Takk fyrir æfinguna síðast hún var þrusugóð og gaman að æfa svona ýmsa þætti sem – já ekki veitir af að æfa s.s. eins og að ná boltanum og senda hann í ákveðna átt. Okkur barst góður liðsauki síðast eða hana Kötu og ljóst er að ef Hildi tekst að mæta oftar þá erum við komnar fína smashara þar ;-). Uppgjafadrottning er Anna Margrét en hún kemst ekki á næstu æfingu því hún er í Svíþjóð og sendir sínar bestu kveðjur.

Mikilvægt er að bæta við nokkrum konum í hópinn svo við séum alltaf um 8 og helst 10 á æfingum þannig að meira rennsli náist og við náum meiri færni í þessari annars stórskemmtilegu íþrótt. Getan í liðinu er breið og krafa um hæfileika er í lágmarki enda gætum við næstum allar verið blakdrottningar án þess að vita það – fæstar höfum við spilað það mikið blak að veruleg reynsla sé komin á það. Þannig að endilega drífið einhverjar með ykkur næst.

Það er svo liðsheildin sem gildir – við mætum fyrir okkur sjálfar og hinar svo hver og ein nái sem mestu út úr æfingunni. Á mínum púlsmæli sést að þetta er veruleg hreyfing fyrir amk mig og það er vísast með þetta eins og aðrar æfingar, fer allt eftir því hvað hver og ein hreyfir sig mikið og hratt hver brennslan og uppbyggingin er – en víst er að möguleikarnir eru fyrir hendi.

Við erum svo frábærlega heppnar að hafa aðganga að ÞREMUR íþróttakennurum og það ekki af lakara taginu.

Þess má einnig geta að ef ég næ að missa 6 kg fyrir jól þá kemur hann Baldur minn á æfingu og þjálfar okkur ;-). Veit ekki alveg hvort það er hvetjandi eða letjandi… En það má því snúa því við ef ég næ þeim ekki þá kemur hann á æfingu – sem refsing. Honum er sama á hvorn veginn það virkar – híhíhí

Laugdælir eru með meistaraflokksþjálfara á sínum snærum og hefur boðið okkur að spila. Til þess væri gott að ná saman liði fyrst ;-) – kannski á vordögum stelpur? Já og þá er líka Öldungamótið. Já það er hægt að fara með svona blakæfingar býsna langt ef áhugi er fyrir hendi. Híhíhí

No comments: