Sunday, April 17, 2011

Kjörísmótið 2011

Einu sinni er allt fyrst og mjór er mikils vísir...

Vísast má finna til fleiri málshætti sem hæfa tilefninu - orðtakið bognar en brotnar ekki á líka við því fleiri verða að sigla en þeir sem sumarveðrið hafa.

Það voru hugrakkar konur sem ákváðu að keppa á Kjörísmótinu - nefnilega Blakdrottningarnar á Borg. Einu sinni er nefnilga allt fyrst og Kjörís er svolítið eins og míni Öldungur - og á öldung ætlum við náttúrulega að fara!

Fyrsti leikurinn var klukkan 8:oo og það þýddi bara eitt. Aumingja Alice sem var ,,driverinn" í morgunsárið svaf sama sem ekki neitt því hún hafði svooo miklar áhyggjur af því að vakna ekki - og þar með valda því að blakdrottningarnar flestar hverjar myndu bara ekkert mæta í slaginn.

En allar mættu þær nú, mismorgunhressa -allar svolítið stressaðar - ja eða amk með smá adrenalín í blóðinu. Það voru 11 konur skráðar til leiks sem þykir nú bara gott hjá Ungmennafélaginu Hvöt sem flestir mótsgestir héldu nú bara að væri frá Blöndósi - það er mikið verk að koma Grímsnesinu á kortið í Blakheimum það er ljóst huhummm.

Það er nú skemmst frá því að segja að það vannst bara ein hrina af 9 - en ef liðsstjórinn hefði nú verið með á nótunum og ekki reynslulausari en mús í fjárrekstri þá hefði e.t.v. mátt raða konum betur inn á t.d. á móti Leðurblökunum því ég fer nú ekki ofan af því að þann leik hefðum við átt að vinna... en gerðum sem sagt ekki... en engu að síður knúðum við fram úrslitahrinu um 7. sætið svo... Bara gaman.

Ég held við höfum allar skemmt okkur vel þó einhverjar hefðu fengið smá frekjuköstu og pirringsköst vegna óviðráðanlegs keppnisskaps - þá jafnaði það sig allt saman og eftir stendur að við lærðum heilmikið og erum svo sannarlega reynslunni ríkari! Það er þá ekki eftir fyrsta mótið okkar.

Hugrún kom með góða athugasemd - við gætum safnað saman öllum kvillum liðsins og myndað ansi flottan lista - jafnvel verkefni fyrir heilan heimilislækni í einhverjar vikur ;-).  Hvernig væri nú ef þið skrifuðuð í comment það sem að ykkur er hér á eftir - jafnvel bara eitt - nú eða fleira, við erum lið með mikla sjúkrasögu og það gerir okkur bara einn flottari!  Híhíhí.

Þessi ferð á Kjörísmótið var mér afskaplega lærdómsrík - ég hef nú ekki tekið þátt í íþróttamóti síðan 1980 svo það var eitt og annað sem þurfti að innbyrða - og komast yfir. Ekki á hverjum degi sem maður þarf að horfast í augu við sjálfan sig eins og á blakmóti :-)

Bæði Baldur og Siggi litu við - Siggi í þjálfarapeysunni - en ekki Baldur. Það hefur þá verið fært til bókar! Okkur þótti nú voða vænt um heimsóknirnar - veitir ekki af að fá stuðninginn!

Eftir að við höfðum lokið leik var tekið við að horfa á Hrunamenn og hvetja þá til dáða enda þjálfararnir okkar báðir spilandi með þeim! Það var nú eins og þeir kynnu ekki alveg að meta stuðninginn svo við snérum okkur aðeins að því að styðja Hamar (erkifjendurna) og þá brá nú fyrir einhverjum athugasemdum vegna þess... svo kannski er þeim ekki eins leitt og þeir láta :-). En við hefðum nú kannski betur sleppt því að hvetja Hamar gegn Fylki - því þeir urðu fyrir ofan Hrunamenn, með nokkrum, örfáum stigum í plús... úff. Er eiginlega með hálfgert samviskubit yfir þessu þriðja sæti Hrunamanna á Kjörísmótinu... úpsi púps. ;-).

Þannig að úrslitin voru því ekki alveg ideal. Hvorki fyrir Hvöt né Hrun!

Það er ákaflega gagnlegt líka að fara á mót til þess að horfa - maður lærir margt með því að innbyrða í gegnum augun því ekki er nú mikið blak í sjónvarpinu. Ég mæli með því að fara og horfa á blak þegar konur koma því við og hef þess vegna reynt að benda ykkur á leiki á fésinu. Margar hafa getað farið.

Mér finnst líka merkilegt að við konur sem komum úr öllum áttum -  með afskaplega ólíkan bakgrunn eigum svona skemmtilegar stundir saman - og við getum náð saman í gegnum blakið :-). Eiginlega svolítið merkilegt bara!
 

2 comments:

Unknown said...

Bíddu ætluðu ekki allar að skrifa hvað hrjáir þær hér undir þennan póst - eða eruð þið ekkert að lesa dýrðina :-).

Inga: Vinstra hné eftir árekstur við Fólksvagn hér í gamla daga og óþarflega mikinn burð kílóa í gegnum tíðina, skaddaður hryggjaliður, gigt og almenna afleiðingar ofþyngdar :-)

Anonymous said...

Ég get nú ekki tekið upp allt plássið í að fara yfir það sem að mér er - en það er svona sæmileg dagvinna fyrir meðalsnarpan gigtar og baklækni, bara fyrir mig!
Kv. Ásta