Kvennadyngja Hvatar
Stelpur bara svo það sé klárt - þeir makar sem koma í heimsókn þurfa að útvega sér gistingu annars staðar og þá með eða án sinna kvenna. Aðstaðan sem Guðbjörg reddaði okkur er bara kvennadyngja okkar Hvatakvenna og við myndum alveg fara á taugum að deila henni með annarra kvenna körlum, já og bara hvaða karli sem er. Ég veit það er verið að íhuga að opna tjaldsvæðið ef fólk á góða ferðavagna, og eins er áreiðanlega hægt að aðstoða hver aðra við að finna önnur gistirými. Hins vegar þarf greiðsla fyrir kvöldverðinn að fara í gegnum reikning Hvatar svo ekkert fari nú á milli mála í þeim efnum. Hittumst hressar á morgun!
No comments:
Post a Comment