Monday, January 3, 2011

Góð mæting

Í fyrsta sinn frá því að blak hófst á Borg voru æfingar á milli hátíða. Mæting var misjöfn, Æfingin 20. desember féll niður, og lokað var á Þorláksmessu. Góð mæting var 3. í jólum en 30. desember mættum við fjórar. Það komu nokkrir krakkar og spiluðu með okkur og það var gaman.

Það kom í ljós í desember að áherslan á fingurslag hefur skilað flestum vel á veg en á kostnað fleygsins og því var hann æfður vel í dag og reynt að minna á hið fornkveðna - niður með rassinn :-). Við mættum 8 í dag og almennt séð var fólk ánægt með æfinguna! Gott ef við erum ekki í svolítilli framför!

Rut var a.m.k. on fire og Bryndís og Ellý Sif ætla að mæta tvisvar í viku - frábærar fréttir það - en HVAR VORU EVA OG HUGRÚN?!"?

1 comment:

Anonymous said...

Er eitthvað vesen að commenta á blogginu stelpur?