Jæja nú er allt að gerast hjá okkur; við fórum nokkrar að horfa á stelpurnar spila á HSK mótinu í blaki og ég bauð Garpi, Hamri 2 og Laugdælum að heimsækja okkur! Það var aldeilis tekið vel í það og nú eru þessi lið öll að koma í heimsókn í þessari röð; fyrsta heimsóknin verður núna á fimmtudaginn en þá koma Hamarskonur, okkar kæra Elva og Harpa Dóra sem voru með okkur í upphafi á Borg.
Garpur mun keppa við okkur en Hamar og Laugdælur bara æfa og leika sér með okkur. Siggi ætlar að koma þegar Garpur kemur. Jeiiii
Við fórum svo horfa á strákana spila á miðvikudaginn var og það var hreint ekki leiðinlegt. Afraksturinn má sjá hér á þessu myndbandi :-) Góða skemmtun
No comments:
Post a Comment