Þetta var nú alveg frábær dagur! Það voru ótrúlega flottar konur sem mættu fyrir Hvöt til þess að taka á móti stelpunum í Hamri B - það voru sko alveg 11 sem mættu; Guðbjörg, Hófí, Alice, Hjördís, Eva Björk, Anna Margrét, Bryndís, Ellisif, Helga og þær meiddu Brúney og Inga voru á hliðarlínunni - bara flottar líka!
Það var alveg frábært að sjá leikgleðina og hve fólk var ákveðið í að hafa gaman, spila og skemmta sér - en um leið sást keppnisskap.
Það var líka gaman að sjá spilið og viljann til þess að standa sig - ég var ótrúlega stolt af ykkur stelpur! Það verður bara gaman að fá Garp í heimsókn - við getum bara látið okkur hlakka til!
Það hefur verið þvílík framför hjá okkur á síðustu vikum og leiðin á bara eftir að liggja upp á við!
Við erum meira að segja komin með alvöru meiðsli, heltapeaðar súpergellur!
No comments:
Post a Comment