Ég mæti að minnsta kosti - þeas hún Ingveldur ;-). Það verður þá alltaf ein mætt. Sigurlín fékk þá undarlegu hugmynd að fara á dómaranámskeið - og það á fimmtudegi - svoldið spes og ég held að það hafi aldrei verið gefið leyfi fyrir því ;-).
Ég hlakka til að sjá ykkur - allar og hverja og eina. Vonandi kemur amk ein ný ;-).
Wednesday, October 31, 2007
Friday, October 26, 2007
Allt er fjórum fært ;-)
Tala nú ekki um ef þær eru orðnar fertugar í ofanálag. Veit nú svo sem ekkert um það hvort þær eru orðnar fertugar hetjurnar sem mættu á æfingu í gær. Við náttúrulega verðum að fjölga okkur eitthvað stúlkurnar ;-).
Ingveldur á hælnum, Elva, Anna Margrét og Svala mættu í gær og æfðu uppgjafir, smöss og svona smá boltafimi - þessi líka fína æfing og púlsinn fór upp hjá okkur flestum - nema kannski Elfu svölu - það þarf að láta hana hlaupa extra hringi extra hratt ;-)
Það var svo sem ekkert gagn að mér - en ég fattaði sniðugt - tók 700 metrana í lauginni semíupphitun og fór svo í blak - minna álag á hælinn ;-). Maður er alltaf að fatta eitthvað nýtt en það er nú annað mál.
Næsta æfing er eftir vetrarfrí á Selfossi og Ljósuborg og nú er að heyrja á: Sigrúnu Sighvats, Sigrúnu Hreiðars, Jóhönnu Einars, Jóhönnu Guðjóns, Vilborgu, Valgerði (held reyndar að hún sé á blaknámskeiði), Sædísi Harðar já og einhverjar fleiri sem ykkur dettur í hug. Við verðum að fá fleiri konur í þetta og hana nú.
Okkur hefur verið boðið að spila við þær á Laugarvatni og þá þurfum við nú að vera búnar að ná í lið - ha hu hummm?
Sjáumst hressar á fimmtudaginn!
Við fáum fjórar fáum því allar hvatningarverðlaun fyrir frábæra eljusemi við æfingarnar ;-)

Wednesday, October 24, 2007
Monday, October 22, 2007
Friday, October 19, 2007
Æfingin skapar meistarann
Það var nú ekki mikill glæsibragur á liðsstjóranum á æfingunni í gær en verður ekki að taka viljann fyrir verkið. Það er þó spurning hvort ég veiti öðrum leyfi til þess að mæta EKKI á æfingu ef viðkomandi er einungis á öðrum fætinum ;-). En ég gat þó hent boltanum á loft í gríðarlegri smash æfingu - þeirri fyrstu á ferli sumra á æfingunni.
Kata benti á þá reglu að boltinn sé á lofti í uppgjöf amk ekki í hendi og það sló okkur nú aðeins útaf laginu - líklega hægt að æfa það betur ;-).
Við vorum ekki nema sjö á æfingunni - eiginlega bara sex eins og áður er minnst á. Það undirstrikar enn mikilvægi þess að smala fleiri konum. Það er hreinlega ekki hægt að segja nei við því að mæta á blakæfingar! Þetta eru þvílík forréttindi. Og maður þarf ekki að kunna neitt! Bara gera sitt besta!
Monday, October 15, 2007
Söfnum liði

Jæja stelpur
Nú er tækifærið til þess að slá í gegn!
Blakæfingar í Íþróttamiðstöðinni Borg á fimmtudögum kl. 17:00
Komdu með og skemmtu þér með okkur – þú átt ekki eftir að sjá eftir því!
Góð hreyfing, betri heilsa, bestar saman
Hefur þú hvort sem er ekki alltaf ætlað þér að verða íþróttahetja?
Nú er tækifærið.
(Þið sem hafið reynt– segið eitthvað fallegt um blak!)
Talið bara við Sigurlín, Elfu eða Kötu Þráins
Þetta er BARA stuð
Sjáumst hressar
http://blakarar.blogspot.com

Blakreglur

Jæja stúlkur hér kemur lesskilningsverkefni ala grande:
Sérstaklega gaman að lesa um frelsingja eða hvað hann nú heitir. Nú svo þurfum við að huga að peysum - þurfum að vera í langerma bolum til að verja hendurnar ;-).
Ætti maður ekki að gá hjá Henson? Hverjir voru nú aftur litir Hvatar.... hmmmm
Eiturgrænn og hvítur ef ég man rétt. Alltaf verið svolítið svag fyrir honum...
Hér gæti verkefnilisti liðsstjórans verið:
Athuga með inngöngu í Hvöt og stöðu þeirra sem eru þá í öðru ungmennafélagi. Ég veit nú um einn sem er í stjón Selfoss en keppir fyrir annað ungmennafélag.
Nú ef við förum í Hvöt hvað græðum við á því (frítt í salinn og kannski búninga?) og hvað græða þeir á því... (lottótekjur og slíkt)
Athuga með net í þennan blessaða sal okkar.
Ná til fleiri kvenna - okkur vantar helst fjórar á hverja æfingu í viðbót - best væri að ná fullu liði sem mér sýnist vera 6 og þá þurfum við allt frá 8 á æfingu og niður í 4 þegar best lét eins og á síðustu æfingu.
Fá gestaþjálfara; hugmyndir eru um Gissur, Baldur og Jón.
Alltaf gaman að fá ferskt blóð - ekki það íþróttakennararnir okkar standa sig frábærlega og merkjanleg framför er hjá okkur öllum!
Á þessari síðu: http://www.volleyball.com/ er gardína - flettiflipi sem heitir Lowdown og þar eru ýmsar sniðugar upplýsingar - æfingar og sögur, góð ráð og slíkt. Spennandi ;-).
Friday, October 12, 2007
Góð æfing

Jæja stúlkur - takk fyrir æfinguna, hún var náttúrulega algjört afbragð nú sem fyrr.
Ég held þetta sé í fyrsta sinn sem við náum því að vera heilar átta. Það náttúrulega má ekki hætta fyrr að ná mannskapnum.
Gott að fá Bergþóru og við bíðum enn eftir Silju sem hefur mikið að gera. Vilborg hlýtur að ná áttum bráðum og mæta. Enda veitir okkur ekkert að liðsstyrknum.
Á æfingunni fór fram leynileg kosning um hver ætti skilið framfarabikarinn að þessu sinni og sú heppna er.....
SIGURLÍN GARÐARSDÓTTIR
fyrir ótrúlega snúnar uppgjafir í orðsins fyllstu merkingu. Andstæðingar hennar máttu sín einskis og lutu í duftið í hverri uppgjöfinn á fætur annarri!
Liðsstjóranum þótti uppgjafirnar hjá Elfu líka glæsilegar og gefa mörg stig!
Nú er vigtun hjá þeim sama liðsstjóra í dag og það er spurning hvort við fáum karlþjálfara á eina æfinguna í kringum áramótin eður ei ;-).
Sem minnir mig á það - passið að raða ekki jólaönnunum á eftirmiðdag á fimmtudögum því okkur veitir sannarlega ekki af spriklinu í þeim önnum öllum saman.
Hvers vegna æfum við blak?
Er ekki tilvalið að svara því í comments?
Þegar þið ,,commentið" þá farið þið í 0 comments eða 1 comments(svör) og póstið og ýtið síðan á appelsínugula hnappinn. Best er að velja bara Anonymous nú eða ef þið eigið Google aðgang þá notið þið hann.
Sjáumst og heyrumst ekki síðar en á fimmtudag
Sunday, October 7, 2007
Reikningsnúmer
Mánaðargjald 3000 krónur
Reikningur:
1169-05-250302
Alice Petersen
kt. 1402685269
Þegar þið eruð að leggja inn skuluð þið skrá í tilvisunarreitin hver borgar og líka gott að senda e-mail á alice@kerholsskoli.is.
Reikningur vegna fjáraflana og fleira:
Eva Björk Kristborgardóttir
1169 05 629
kt: 1506743449
Vinsamlegast sendið kvittun á netfangið á evakristborgar@gmail.com
Blaklið kvenna Hvöt 2010 - 2011
![]() |
11. Hófí |
Nafn Hólmfríður Fjóla Zoëga Smáradóttir
Númer 11
Afmælisdagur: 5 febrúar 1986
Aðsetur: Þorlákshōfn
Staða á vellinum:alls staðar þó aðallega uppspilari
Mottó a vellinum: fara i alla bolta! :)
Nick: Kjúklingurinn
Númer 11
Afmælisdagur: 5 febrúar 1986
Aðsetur: Þorlákshōfn
Staða á vellinum:alls staðar þó aðallega uppspilari
Mottó a vellinum: fara i alla bolta! :)
Nick: Kjúklingurinn
![]() |
4. Anna Margrét Nick: Kickerinn |
![]() |
7. Birna Guðrún Nick: |
![]() |
5. Bryndís |
![]() |
10. Hugrún Nick: Thunderbolt! |
![]() |
15. Íris |
![]() |
Rut Guðmundsdóttir Nick: KÓLÍBRÍFUGLINN (Fiðrildið) |
![]() |
8, Signý Nick: Bissneskonan |
![]() |
3. Ellisif |
![]() | |||
6. Eva Björk Nafn: Eva Björk Kristborgardóttir Númer: 6 Afmælisdagur: 15.júní Aðsetur: Borg, Grímsnesi Staða á vellinum: sóknarmaður Mottó: Að hafa gaman og vera með! |
![]() |
1. Helga |
![]() |
9. Alice |
Nafn: Alice Petersen
Númer: 9
Afmælisdagur: 14. febrúar 1968
Aðsetur: Laugarási í Biskupstungum
Staða á vellinum: uppspilari
Mottó: Það sem ekki drepur þig, herðar þig.....
Nick: Kaktusinn
Myndir vantar af:Númer: 9
Afmælisdagur: 14. febrúar 1968
Aðsetur: Laugarási í Biskupstungum
Staða á vellinum: uppspilari
Mottó: Það sem ekki drepur þig, herðar þig.....
Nick: Kaktusinn
2. Guðbjörg
Nafn: Guðbjörg viðarsdóttir
Númer: 2
Afmælisdagur: 19. maí
Aðsetur: Flúðir
Staða á vellinum: Sóknarmaðuren reyni að vera hreyfanleg - enga kyrrstöðu!
Mottó: Komast hæjulaus heim!
Númer: 2
Afmælisdagur: 19. maí
Aðsetur: Flúðir
Staða á vellinum: Sóknarmaðuren reyni að vera hreyfanleg - enga kyrrstöðu!
Mottó: Komast hæjulaus heim!
12. Brúney
Nick: Einar
14. Laila
Síðasta æfing og framhaldið
Takk fyrir æfinguna síðast hún var þrusugóð og gaman að æfa svona ýmsa þætti sem – já ekki veitir af að æfa s.s. eins og að ná boltanum og senda hann í ákveðna átt. Okkur barst góður liðsauki síðast eða hana Kötu og ljóst er að ef Hildi tekst að mæta oftar þá erum við komnar fína smashara þar ;-). Uppgjafadrottning er Anna Margrét en hún kemst ekki á næstu æfingu því hún er í Svíþjóð og sendir sínar bestu kveðjur.
Mikilvægt er að bæta við nokkrum konum í hópinn svo við séum alltaf um 8 og helst 10 á æfingum þannig að meira rennsli náist og við náum meiri færni í þessari annars stórskemmtilegu íþrótt. Getan í liðinu er breið og krafa um hæfileika er í lágmarki enda gætum við næstum allar verið blakdrottningar án þess að vita það – fæstar höfum við spilað það mikið blak að veruleg reynsla sé komin á það. Þannig að endilega drífið einhverjar með ykkur næst.
Það er svo liðsheildin sem gildir – við mætum fyrir okkur sjálfar og hinar svo hver og ein nái sem mestu út úr æfingunni. Á mínum púlsmæli sést að þetta er veruleg hreyfing fyrir amk mig og það er vísast með þetta eins og aðrar æfingar, fer allt eftir því hvað hver og ein hreyfir sig mikið og hratt hver brennslan og uppbyggingin er – en víst er að möguleikarnir eru fyrir hendi.
Við erum svo frábærlega heppnar að hafa aðganga að ÞREMUR íþróttakennurum og það ekki af lakara taginu.
Þess má einnig geta að ef ég næ að missa 6 kg fyrir jól þá kemur hann Baldur minn á æfingu og þjálfar okkur ;-). Veit ekki alveg hvort það er hvetjandi eða letjandi… En það má því snúa því við ef ég næ þeim ekki þá kemur hann á æfingu – sem refsing. Honum er sama á hvorn veginn það virkar – híhíhí
Laugdælir eru með meistaraflokksþjálfara á sínum snærum og hefur boðið okkur að spila. Til þess væri gott að ná saman liði fyrst ;-) – kannski á vordögum stelpur? Já og þá er líka Öldungamótið. Já það er hægt að fara með svona blakæfingar býsna langt ef áhugi er fyrir hendi. Híhíhí

Subscribe to:
Posts (Atom)