Golf á Kiðjabergi í stað Blaks ;-)
Hvatarkonum (og e.t.v. fáum útvöldum vinkonum þeirra) býðst að mæta á Kiðjaberg kl 17, alla virka mánudaga og fimmtudaga í júní (7dagar). Haraldur golvallarstjóri og golfkennari (og eiginmaður Ástu Bjarkar) tekur að sér kennslu á æfingasvæðinu í 30 - 45 mín. (í einum eða tveimur hópum eftir mætingu) og síðan er okkkur frjálst að spila litla völlinn, fara út á þann stóra (þær sem treysta sér og ef ekki er mikil traffík). Þær sem heldur vilja komast í meiri brennslu geta farið í göngutúra um svæðið í stað þess að spila. Halli útvegar kylfur, kúlur og aðgang að vellinum. 500 kr. tíminn, þarf ekki að skrá sig og það má mæta í staka tíma eða alla eftir því sem hver og ein vill. Ef stemning næst fyrir þessu verður skoðað með áframhald í júlí. Gott er að melda sig á Fésinu - þá skapast líka meiri stemmning!
Mikið hlakka ég til!
No comments:
Post a Comment