Monday, May 2, 2011

Hver vill fara á Öldungaþing?

Öll lið athugið - varðandi Öldungaþing

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
old2011-logoÖldungaþing er haldið í tengslum við öldungamótið hverju sinni. Hlutverk  öldungaþing er í samræmi við markmið mótanna og dagskrá þingsins eins og  hún er í 1. gr. og 10. gr. Reglugerðar um Öldungamót BLÍ. Að þessu sinni  verður þingið haldið í Höllinni, 2. hæð kl. 21.00, fimmtudaginn 5. maí. Það hefur verið spurt um atkvæði á öldungaþingi og hvort fela megi öðrum að fara með atkvæði liðs. Um þetta eru ekki aðrar leiðbeiningar í núgildandi reglugerð en þær að hvert þátttökulið fari með eitt atkvæði á öldungaþingi. Þetta þýðir að einhver verður að mæta fyrir hönd hvers liðs, sem svo þýðir að hver þátttakandi getur ekki farið með nema eitt atkvæði. Hvaða einstaklingur það er, sem fer með atkvæði hvers liðs verður ákvörðun liðsins (forsvarsmanns).
Hver sá sem fer með atkvæði liðs beri með sér eintak af "atkvæðisbréfi", undirrituðu af forsvarsmanni liðs eða e.h. fyrir hans hönd, sem hann sýnir ritara þingsins í upphafi þess og fær afhentan atkvæðaseðil, einn eða fleiri í mismunandi litum, sem þá yrðu notaðir ef til meira en einnrar atkvæðagreiðslu kemur. Jafnframt merkir ritari við nöfn þeirra liða sem mætt er fyrir. Með því verður tryggt að öll lið sem mætt er fyrir hafi atkvæðarétt á þinginu. Þetta atkvæðabréf er aðgengilegt hér  á pdf formi, en skjalið mun einnig liggja frammi á þinginu. 
Samkvæmt 10. gr. Reglugerðar um Öldungamót BLÍ er dagskrá öldungaþings þannig:
1. Að velja öldung næsta öldungamóts. Á öldungaþingi ræður einfaldur meirihluti.
2. Að ræða og gera tillögur til breytinga á reglugerð um öldungamót BLÍ, er lagðar verða fyrir næsta ársþing BLÍ.
3. Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.

Úr Reglugerð um Öldungamót BLÍ:
1.gr.
Mótið heitir öldungamót BLÍ. Markmið þess er að útbreiða blakíþróttina, stuðla að framförum í tækni og viðhalda getu keppenda.
10. gr.
Öldungaþing skal haldið í tengslum við öldungamótið. Öldunganefndin skal sjá um framkvæmd þess. Miða skal við kvöld fyrsta heila keppnisdags, ef unnt er. Rétt til setu á öldungaþingi hafa allir þátttakendur á öldungamótinu ár hvert. Hlutverk öldungaþings er í samræmi við markmið og tilgang þeirra og dagskrá þingsins. Á öldungaþingi fer hvert þátttökulið  með 1 atkvæði.
a) Að velja öldung næsta öldungamóts. Á öldungaþingi ræður einfaldur meirihluti.
b) Að ræða og gera tillögur til breytinga á reglugerð um öldungamót BLÍ, er lagðar verða fyrir næsta ársþing BLÍ.
c) Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.
d) Mál sem lögð eru fyrir þingið skulu berast öldungi 21 degi fyrir fyrsta mótsdag.

No comments: