Æfingar eru mánudaga og fimmtudaga
Mælst er til þess að mæta snemma og taka góða upphitun fyrir æfingu - í boði verða léttar stöðvar eða aðstaðan uppi til æfinga. Hægt að gera heilmikið á hálftíma - nýtum okkur frábæra aðstöðu til þess að koma okkur í gott form!
Ekki er vitað hvenær þjálfarar koma en stefnt er að því að þeir komi 1x í viku hverri. Jafnvel oftar ef undirbúningur krefst þess.
Laugarvatnsleikarnir í blaki eru 14. janúar.
HK trimm - 3. deild kvenna spilar 15. janúar svo við getum keppt þar. Það gæti verið gott að taka tvo daga og sjá hvernig það leggst í okkur - þarf að koma fólkinu í form ;)
8. febrúar er hsk mótið í blaki b riðill sem er væntanlega okkar riðill - keppnin fer fram á Laugarvatni. Seinni aðferðin fer fram 3. mars, í Iðu.
Við erum skráðar með tvö lið í hsk - en gott væri að stefna á að fara með amk eitt lið á Laugarvatn og svo Hk trimmið - þurfa ekki allt að vera sömu konurnar. Gott væri að merkja sem allra fyrst við á Facebook hvort konur komist eða tilkynna hér fyrir neðan á þessari færslu.
Bestu nýárskveðjur, Ingveldur
1 comment:
Gubba Wood er tilbúin í Laugarvatnsleikana en ekki eins spennt fyrir Reykjavíkurferð daginn eftir! Kveðja fyrir hennar hönd ie
Post a Comment