Thursday, November 3, 2011

HSK mótið


HSK fréttir 3. nóvember 2011 

Hraðmót HSK í blaki kvenna 2011:
Metþátttaka á mótinu – 10 lið mættu til leiks
Hraðmót HSK í blaki kvenna var haldið á Hvolsvelli þann 24. október.  Blakið nýtur meiri og meiri vinsælda á sambandssvæðinu en 10 lið tóku þátt í mótinu sem er stærsta hraðmót HSK til þessa. 
Dregið var í tvo riðla sem síðan spiluðu í einföldum úrslitum.  Hvert lið spilaði því fimm leiki á fjórum klukkutímum og voru blakarar þreyttir þegar mótinu lauk þegar klukkan var langt gengin í tólf. Það vill til að blakarar eru vanir að sjá miðnættið í fötum og skemmtu þeir sér vel á þessu stóra móti.
Hrunamenn sem hingað til hafa einungis skartað firnasterku karlaliði hafa nú komið sér upp harla góðu kvennaliði sem gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið.  Í öðru sæti eru Garpar en lið þeirra hefur tekið stórstígum framförum á undanförnum árum.  Íþróttafélagið Hvöt í Grímsnes og Grafningshreppi  mætti í fyrsta sinn á HSK mót og með tvö lið, geri aðrir betur.  Laugdælir, Hamar og Dímon skunduðu á Hvolsvöll með 2 lið hvert og reyndar munaði minnstu að Laugdælir næðu í þrjú lið. 

Lokastaða:
1.    Hrunamenn
2.    Garpur
3.    Hamar 1
4.    Dímon 2
5.    Dímon 1
6.    Laugdælir 1
7.    Hamar 2
8.    Hvöt 1
9.    Laugdælir 2
10. Hvöt 2

A - Riðill
Hrunamenn  -  Hvöt 2         = (21 – 3), (21 - 6)
Hrunamenn  - Hvöt 1          = (21 – 13), (21 – 8)
Hrunamenn – Hamar 1       = (21 - 17), (21 - 20)
Hrunamenn – Dímon 1        = (21 – 17), (21 – 16)
Hvöt 2 – Hvöt 1                 = (21 – 17), (15 -21)
Hvöt 2 – Hamar 1              = (7 – 21), (3 – 21)
Hvöt 2 – Dímon 1              =  (5 - 21), (7 - 21)
Hvöt 1 – Hamar 1              = (4 – 21), (9 -21)
Hvöt 1 – Dímon 1              = (13 – 21), (5 -21)
Hamar 1 – Dímon 1            = (21 – 9), (15 – 21)


B - Riðill
Laugdælir 1 – Laugdælir 2    = (21 - 17), (21 - 14)
Laugdælir 1 – Dímon 2        = (9 – 21), (18 – 21)
Laugdælir 1 – Hamar 2       = (21 – 11), (15 – 21)       
Laugdælir 1 – Garpur          = (11 – 21), (14 – 21)
Laugdælir 2 – Dímon 2        = (14 - 21), (14 - 21)
Laugdælir 2 – Hamar 2       = (21 - 12), (19 - 21)
Laugdælir 2 – Garpur          =  (18 - 21), (7 - 21)
Dímon 2 – Hamar 2            = (21 – 14), (21 – 14)
Dímon 2 – Garpur              = (14 – 21), (20 – 21)
Hamar 2 – Garpur             = (9 - 21),  (13 - 21)

Úrslitariðill:
A1  Hrunamenn – B1 Garpur         = (21 – 8), (21 – 15)
A2  Hamar 1 – B2 Dímon 2           = (21 - 16), (21 – 18)
A3 Dímon 1 – B3 Laugdælir 1        = (21 – 9), (20 – 21)
A4 Hvöt 1 – A4 Hamar 2               = (20 -21), (19 – 21)
A5 Hvöt 2 – A5 Laugdælir 2           = (10 – 21), (8 – 21)

No comments: