Sunday, May 15, 2011

Golf á Kiðjabergi í stað Blaks ;-)

Hvatarkonum (og e.t.v. fáum útvöldum vinkonum þeirra) býðst að mæta á Kiðjaberg kl 17, alla virka mánudaga og fimmtudaga í júní (7dagar). Haraldur golvallarstjóri og golfkennari (og eiginmaður Ástu Bjarkar) tekur að sér kennslu á æfingasvæðinu í 30 - 45 mín. (í einum eða tveimur hópum eftir mætingu) og síðan er okkkur frjálst að spila litla völlinn, fara út á þann stóra (þær sem treysta sér og ef ekki er mikil traffík). Þær sem heldur vilja komast í meiri brennslu geta farið í göngutúra um svæðið í stað þess að spila. Halli útvegar kylfur, kúlur og aðgang að vellinum. 500 kr. tíminn, þarf ekki að skrá sig og það má mæta í staka tíma eða alla eftir því sem hver og ein vill. Ef stemning næst fyrir þessu verður skoðað með áframhald í júlí. Gott er að melda sig  á Fésinu - þá skapast líka meiri stemmning!


Mikið hlakka ég til!

Monday, May 2, 2011

Hver vill fara á Öldungaþing?

Öll lið athugið - varðandi Öldungaþing

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
old2011-logoÖldungaþing er haldið í tengslum við öldungamótið hverju sinni. Hlutverk  öldungaþing er í samræmi við markmið mótanna og dagskrá þingsins eins og  hún er í 1. gr. og 10. gr. Reglugerðar um Öldungamót BLÍ. Að þessu sinni  verður þingið haldið í Höllinni, 2. hæð kl. 21.00, fimmtudaginn 5. maí. Það hefur verið spurt um atkvæði á öldungaþingi og hvort fela megi öðrum að fara með atkvæði liðs. Um þetta eru ekki aðrar leiðbeiningar í núgildandi reglugerð en þær að hvert þátttökulið fari með eitt atkvæði á öldungaþingi. Þetta þýðir að einhver verður að mæta fyrir hönd hvers liðs, sem svo þýðir að hver þátttakandi getur ekki farið með nema eitt atkvæði. Hvaða einstaklingur það er, sem fer með atkvæði hvers liðs verður ákvörðun liðsins (forsvarsmanns).
Hver sá sem fer með atkvæði liðs beri með sér eintak af "atkvæðisbréfi", undirrituðu af forsvarsmanni liðs eða e.h. fyrir hans hönd, sem hann sýnir ritara þingsins í upphafi þess og fær afhentan atkvæðaseðil, einn eða fleiri í mismunandi litum, sem þá yrðu notaðir ef til meira en einnrar atkvæðagreiðslu kemur. Jafnframt merkir ritari við nöfn þeirra liða sem mætt er fyrir. Með því verður tryggt að öll lið sem mætt er fyrir hafi atkvæðarétt á þinginu. Þetta atkvæðabréf er aðgengilegt hér  á pdf formi, en skjalið mun einnig liggja frammi á þinginu. 
Samkvæmt 10. gr. Reglugerðar um Öldungamót BLÍ er dagskrá öldungaþings þannig:
1. Að velja öldung næsta öldungamóts. Á öldungaþingi ræður einfaldur meirihluti.
2. Að ræða og gera tillögur til breytinga á reglugerð um öldungamót BLÍ, er lagðar verða fyrir næsta ársþing BLÍ.
3. Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.

Úr Reglugerð um Öldungamót BLÍ:
1.gr.
Mótið heitir öldungamót BLÍ. Markmið þess er að útbreiða blakíþróttina, stuðla að framförum í tækni og viðhalda getu keppenda.
10. gr.
Öldungaþing skal haldið í tengslum við öldungamótið. Öldunganefndin skal sjá um framkvæmd þess. Miða skal við kvöld fyrsta heila keppnisdags, ef unnt er. Rétt til setu á öldungaþingi hafa allir þátttakendur á öldungamótinu ár hvert. Hlutverk öldungaþings er í samræmi við markmið og tilgang þeirra og dagskrá þingsins. Á öldungaþingi fer hvert þátttökulið  með 1 atkvæði.
a) Að velja öldung næsta öldungamóts. Á öldungaþingi ræður einfaldur meirihluti.
b) Að ræða og gera tillögur til breytinga á reglugerð um öldungamót BLÍ, er lagðar verða fyrir næsta ársþing BLÍ.
c) Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.
d) Mál sem lögð eru fyrir þingið skulu berast öldungi 21 degi fyrir fyrsta mótsdag.

Mótsreglur Öldungs 2011

Mótsreglur liggja nú fyrir. Mikilvægt er að öll lið kynni sér vel reglurnar. Þær má nálgast með því að smella á NÁNAR. 
  • Leikur hefst um leið og völlurinn er laus.
  • Engin upphitun er leyfð á velli.
  • Lið sem er nefnt á undan byrjar vinstra megin við ritara og hefur leik.
  • Hver hrina er upp í 25 stig og er hægt að vinna hrinu með 1 stigi (t.d. 25-24). Í oddahrinu er leikið upp í 15 og má vinna með 1 stigi (t.d. 15-14).
  • Tvö leikhlé eru leyfð í hrinu, nema aðeins 1 leikhlé í oddahrinu. Í oddahrinu skal skipta um leikhelming þegar annað liðið nær 8 stigum.
  • Umsjónarlið þarf að útvega ritara leiks, mann á flettispjald og tvo línuverði.
  • Dómari leiks hefur úrslitavald í vafaatriðum og eru starfsmenn leiks og keppendur beðnir um að virða það.