Reglur í blaki; sókn
18 Sókn:
18.1 Skilgreining:
18.1.1 Sókn er sú athöfn leikmanns að leika knettinum í átt að leiksvæði mótherjanna.
Undanskilin eru þó uppgjöf og hávörn. Heimilt er að lauma knettinum ef slagið er hreintog höndin fylgir honum ekki.
18.1.2 Sókn er lokið þegar knötturinn er allur farinn yfir netið eða hann snertir hávörn.
18.2 Sókn framherja:
Framherji má sækja hvaðan sem er á eigin leiksvæði og skiptir hæð knattarins þá engu máli.
18.3 Takmarkanir á sókn varnarmanns:
18.3.1 Varnarmaður má sækja úr hvaða hæð sem er aftan sóknarreits. Við uppstökk mega fætur hans hvorki hafa snert sóknarlínu né sóknarreit. Eftir sóknina er heimilt að lenda í sóknarreitnum (1.4.1).
18.3.2 Varnarmanni er heimilt að sækja úr sóknarreit ef knötturinn er, á því andartaki sem hann er snertur, allur eða að hluta fyrir neðan efri netbrún (mynd 7).
18.4 Sóknarbrot:
a. Leikmaður snertir knöttinn á leiksvæði mótherjanna (16.2.2).
b. Leikmaður sendir knöttinn „út“ (12.4).
c. Varnarmaður sækir úr sóknarreit og hefur slegið knöttinn allan ofan við netbrún (18.1.2,
18.3.2).
d. Leikmaður sækir á móti uppgjöf mótherjanna þegar knötturinn er í sóknarreit og allur yfir efri netbrún.
e. Frelsingi sækir og hefur slegið knöttinn allan ofan við netbrún.
f. Leikmaður sækir ofan við netbrún og frelsingi hefur leikið knettinum til hans með fingurslagi úr sóknarreit (11.6)
Sóknarreitur í blaki er fremri hluti vallarins, sá aftari - er varnarsvæði.
No comments:
Post a Comment