Friday, February 25, 2011

Frekar flott æfing og ekki skemmdi strandhöggið á eftir agnarögn fyrir!

Það var frábær æfing í gær hjá okkur og gaman að sjá áhugann hjá hverri og einni. Það var ekki síður frábært að við mættum heil 12 stykki sem er nú bara stórkostlegt! Það þýddi að við gátum spilað með 2 full lið og við æfðum 4 uppspilara; Alice, Hófí, Bryndísi og Birnu! Þær stóðu sig svakalega vel og það er um að gera að þjálfar þett sem mest og best. Rut, Anna Margrét, Hugrún og Brúney æfðu smassið sérstaklega og við hinar vorum í móttökunni!

Við æfðum uppstillingar og svona þetta var bara gaman! Eiginlega frábært.

Svo fórum við Bryndís, Ellisif, Eva, Alice og Guðbjörg að horfa á Hrunamenn taka Hamar í bakaríið. Það var sko ekki leiðinlegt. Ég held nú satt að segja að þeir hafi unnið svona stórt því við vorum svo góðar grúppíur.

Við vorum vinsamlegast beðnar um að mæta héreftir því stærri sigur hefur ekki sést hjá Hrunamönnum lengi :-).

Þjálfararnir stóðu sig vel, Ásinn var fínn og Tían eiginlega upp á tíu sá stutti ;-).

Spurning um að skella sér aftur eftir viku híhíhí

Utanyfirgallarnir verða pantaðir eftir helgina - ég vona að keppnisgallarnir komi fyrir Hamarsleikinn... það er samt ekki alveg víst.

Annað - gott væri að þær sem það geta borgi 2 mánuði eða meira núna um mánaðarmótin svo við náum að greiða reikningana. Margar eru búnar að borga allt sitt eða langt í það.

Allar kennitölur eru komnar og nú er það bara Hörður sem skráir okkur inn í gagnagrunn ÍSÍ og þá erum við orðnar til. Jei... ekki slæmt!

Gott væri að konur skráðu sig ef þær ætla að koma á öldung -  það þarf vísast að fara að panta farið.

Guðbjörg Víðars kemur en það er ekki víst hún geti spilað mikið því hnéð á henni fór í leik um daginn en hún gæti verið starfsmaður!

Sunday, February 20, 2011

Bréf til félagsmanna :-)

Sjáið þið þær þessar - Allar tilbúnar - Smassarinn tilbúinn og hinar fyrir aftan að taka á móti eftir að hávörnin hjá Kína! Þetta heitir að vera tilbúnar í móttöku!
Sælar allar

Ég minni á Fésbókina okkar - Blak á Borg, og svo er það þessi síða - blakarar.blogspot.com þar má finna eitt og annað efn i tengt blakinu hjá okkur. Tengla, stutta kafla úr reglunum, skoðanakönnun og annað slíkt sem þær ykkar sem vantar ekki tíma geta litið á. Það er gott að renna yfir reglurnar í blaki - reyndar nauðsynlegt, alltaf við og við og smám saman skiljum við þær betur eftir því sem við spilum meira og fáum kennslu hjá þjálfurunum okkar.

Að öllu óbreyttu koma Hamarskonur B á fimmtudaginn, líklega koma þær hálf sex þannig að mæting getur verið frá fimm en æfingin verður aðeins lengri vænti ég. Um kvöldið leika Hrunamenn og Hamarsmenn á Flúðum en þeir hafa gjarnan eldað grátt silfur í Suðurlandsslagnum. Það er líka afskaplega gott að horfa á blak og læra þannig - og þó karlarnir taki þetta af ívið meiri krafti heldur konurnar þá er afskaplega lærdómsríkt að fylgjast með þeim. Ég hvet því alla til þess að líta á leiki hvort heldur á fimmtudag eða á hsk mótinu en hvort tveggja má finna undir viðburðum. Muna líka að merkja við hvort fólk ætli að mæta á viðburði. Það hjálpar mjög mikið í undirbúningi fyrir æfingar t.d. að vita hve margar mæta.

Ég hitti Hörð á mánudaginn en þá förum við yfir skráninguna á Öldung og Blakdeild Hvatar verður í raun stofnuð formlega - við höfum feril að verja því 1973 urðu Hvöt karlar Íslandsmeistarar í blaki (reyndar var það ML sem náði þeim titili fyrir okkur) en þið sjáið að það er úr háum söðli að falla :-).

Þið skuluð endilega merkja inn á viðburð hvort þið ætlið á Öldung og eins megið þið senda mér kennitölurnar ykkar og heimilisföng í pósti eða í gegnum fésið.

Það er því heldur rismikið þetta lið okkar (þó lyftingin eigi sér nú ekki alltaf stað hjá boltanum ;-)) - við erum svo heppnar að hafa TVO þjálfara og TVO sjúkraþjálfara á okkar vegum og 14 iðkendur - það er ekki slæmt! Og ekki munu búningarnir skemma fyrir - það verður nú ekkert smá!

Nú er Henson komnir með allar upplýsingar fyirr keppnisgallann - og margar okkar erum búnar að máta hina frábæru utanyfirgalla - þeir eru úr hreint frábæru efni og líta mjög vel út! Við verðum bara flottastar - það verður aldrei annað sagt!

Við skulum reyna að vera komnar með stærðir frá öllum í þeim göllum á mánudaginn svo hægt sé að senda pöntunina sem fyrst.

Á mánudaginn tökum við æfinguna sem Baldur kom með - vinna þrjár saman - hlaupa fram og svo aftur. Þá verður líka sérstakt átak í því að segja hver ætlar að taka boltann. Og svo er nú að stilla upp sigurstranglegu liði gegn Hamri - langar einhverja til þess að komast í byrjunarliðið? Það verða þær sem sagjast hafa boltann og reyna þar að auki að standa undir þeirri fullyrðingu!


Ég held það sé ekki meira að sinni -

Helga ferð þú ekki að koma í heimsókn ;-).

Kveðja managerinn ;-)

p.s. setti inn myndir af uppspilanum í stöðum 2 og 4 og númerin á vellinum. Gott að læra það oh yeah

Uppspilari og númer á velli



Tuesday, February 15, 2011

Reglur í blaki; sókn

18 Sókn:

18.1 Skilgreining:
18.1.1 Sókn er sú athöfn leikmanns að leika knettinum í átt að leiksvæði mótherjanna.
Undanskilin eru þó uppgjöf og hávörn. Heimilt er að lauma knettinum ef slagið er hreintog höndin fylgir honum ekki.
18.1.2 Sókn er lokið þegar knötturinn er allur farinn yfir netið eða hann snertir hávörn.
 
18.2 Sókn framherja:
Framherji má sækja hvaðan sem er á eigin leiksvæði og skiptir hæð knattarins þá engu máli.

18.3 Takmarkanir á sókn varnarmanns:
18.3.1 Varnarmaður má sækja úr hvaða hæð sem er aftan sóknarreits. Við uppstökk mega fætur hans hvorki hafa snert sóknarlínu né sóknarreit. Eftir sóknina er heimilt að lenda í sóknarreitnum (1.4.1).
18.3.2 Varnarmanni er heimilt að sækja úr sóknarreit ef knötturinn er, á því andartaki sem hann er snertur, allur eða að hluta fyrir neðan efri netbrún (mynd 7).
 
18.4 Sóknarbrot:
a. Leikmaður snertir knöttinn á leiksvæði mótherjanna (16.2.2).
b. Leikmaður sendir knöttinn „út“ (12.4).
c. Varnarmaður sækir úr sóknarreit og hefur slegið knöttinn allan ofan við netbrún (18.1.2,
18.3.2).
d. Leikmaður sækir á móti uppgjöf mótherjanna þegar knötturinn er í sóknarreit og allur yfir efri netbrún.
e. Frelsingi sækir og hefur slegið knöttinn allan ofan við netbrún.
f. Leikmaður sækir ofan við netbrún og frelsingi hefur leikið knettinum til hans með fingurslagi úr sóknarreit (11.6)

Sóknarreitur í blaki er fremri hluti vallarins, sá aftari - er varnarsvæði.

Monday, February 14, 2011

Fullt að gerast

Stelpur lítið vel á reglurnar þær eru komnar hér inn á síðuna. Nú eru komnar upp hugmyndir um að keppa á Kjörísmótinu - hvað finnst ykkur um það?

Tuesday, February 1, 2011

Garpar mæta Garpi!

Jæja nú er gærdagurinn liðinn og við höfum nú tekið á móti tveimur liðum á einni viku - bara frábært.

Við eigum nokkuð í land með að ná góðu spili og það er sérstaklega móttakan og hreyfingin í liðinu. Við þurfum að vera grimmari í hvern bolta og tilbúnar í að taka boltann þegar hann kemur aftur :-).

We can do it!

Nú er bara að æfa þetta - hlusta vel á þjálfarana og trúa því að við getum þetta, hver og ein getur gert betur og sýnt meiri hugsun og lestur í spilinu.

Okkur hefur farið þvílíkt fram og við munum gera það áfram.

Við erum gordjöss!