Jæja nú er þjálfari kominn í hús og nú þarf að huga að búningum.
Ég er búin að skrifa bréf til Hvatar og Sveitarstjórnar um styrk vegna þjálfara og búninga en á ekki endilega von á að neitt komi út úr því. Sakar ekki að reyna.
Bolur með númeri og merki kostar um 4500 krónur og jakki kostar 5000 - buxur eru svo nokkuð sem við þurfum líka að huga að en þangað til er þetta um 10 þúsund kall. Ég ætla að fara í bæinn bráðlega og hitta Henson og koma með tillögu að búningum. Er ekki bara rétt að hafa þetta í Hvatarlitunum því þaðan fáum við húsnæðið? Jakkarnir eru úr einhverju hágæða efni en nánar um það síðar.
Akranes:

Hér er dæmi um búninga frá þeim á Álftanesi- með eða án ermum. Það er hægt að hafa þær lengri og alveg langerma ef vill:

1 comment:
Mér finnst blakbolirnir flottari þeas þessir eins og þær á álftanesinu eru í - spurning hvort það eigi að vera lengri ermar í mínu tilviki amk
Post a Comment