Sunday, September 19, 2010

Blak með Laugdælum

Á fyrsta ári blakliðs Hvatar - eða mín :-) var stungið upp á því á jólahlaðborðinu á Hótel Valhöll heitinni, að við færum í heimsókn til Laugdæla á blakæfingu.  Ég held reyndar að Anna Margrét hafi einhvern tímann verið svo fræg að gera það. Ekkert varð nú úr þessu - fyrr en þá nú.

Kristrún Hermannsdóttir sagði mér að þjálfarar Laugdæla varu þau Gunnhildur og Bjössi en þau eru kennarar við HÍ á Laugarvatni og ég tók upp lyklaborðið og skrifaði Gunnhildi og spurði út í hvort við mættum koma í heimsókn.  Þetta var svar hennar:

.
Þið megið gjarnan koma - ef þið eruð meiri byrjendur heldur en lengra komnar þætti okkur betra að þið kæmuð bara sem fyrst þar sem það er þægilegra upp á hvers konar æfingar við erum með. Erum meira að vinna í grunni núna en svo pressum við meira þegar færnin hefur aukist.

Æfingarnar eru milli kl 17.30-19.00 á þriðjudögum og á fimmtudögum milli kl 20-21. Viljið þið koma strax í næstu viku? Eða voruð þið kannski frekar að spá i að koma og bara spila við okkur?

Endilega láttu mig vita hvenær þið viljið koma,

Ávallt velkomnar – veistu hvað þið eruð margar?

 Þar sem ég lít svo á að við séum frekar byrjendur en hitt þá vill hún frekar að komum sem fyrst enda er í sjálfu sér ekki eftir neinu að bíða.  Ég hef því sett upp á facebook viðburði og þið getið merkti við annan hvorn eða báða allt eftir því hvað á við hjá ykkur - en endilega merkið við Mætí eða mæti ekki möguleikann.  Það hjálpar að telja út hve margar við verðum en ég ætla að svara henni því á mánudaginn.

Á mánudagsæfingunni ætlum við að þjálfa móttöku - fleyg, hafa beina hendur, hlaupa með þær lausar og setja þær í stöðu undir boltann þegar að honum er komið en eins og Baldur sagði þá ættum við HELST að hlaupa í átt að honum :-).

Hér á síðunni er að finna youtube brot sem sýnir vel móttökuna - ef þið þurfið að rifja eitthvað upp.

Ég hef beðið um styrk til sveitarstjórnar til þess að ráða þjálfara - og eða búninga.  Við fáum að vita hvað kemur út úr því á miðvikudaginn.  


No comments: