Sunday, September 26, 2010

Strandhögg

Þessar líka frábæru konur í Blakliði Hvatar hafa nú afrekað ýmsilegt á síðustu dögum:

1. Fengið 50 þús. kr. styrk frá Sveitarfélaginu til búningakaupa.

2. Farið í heimsókn til Laugæla og fundið fyrir því!Það er sem sagt hægt að taka verulega á í blaki.

3. Æft móttöku

Við þurfum að taka framförum gera betur og betur og leggja meira á okkur.

Ná honum upp!

Sunday, September 19, 2010

Passing Indoors - móttaka

Blak með Laugdælum

Á fyrsta ári blakliðs Hvatar - eða mín :-) var stungið upp á því á jólahlaðborðinu á Hótel Valhöll heitinni, að við færum í heimsókn til Laugdæla á blakæfingu.  Ég held reyndar að Anna Margrét hafi einhvern tímann verið svo fræg að gera það. Ekkert varð nú úr þessu - fyrr en þá nú.

Kristrún Hermannsdóttir sagði mér að þjálfarar Laugdæla varu þau Gunnhildur og Bjössi en þau eru kennarar við HÍ á Laugarvatni og ég tók upp lyklaborðið og skrifaði Gunnhildi og spurði út í hvort við mættum koma í heimsókn.  Þetta var svar hennar:

.
Þið megið gjarnan koma - ef þið eruð meiri byrjendur heldur en lengra komnar þætti okkur betra að þið kæmuð bara sem fyrst þar sem það er þægilegra upp á hvers konar æfingar við erum með. Erum meira að vinna í grunni núna en svo pressum við meira þegar færnin hefur aukist.

Æfingarnar eru milli kl 17.30-19.00 á þriðjudögum og á fimmtudögum milli kl 20-21. Viljið þið koma strax í næstu viku? Eða voruð þið kannski frekar að spá i að koma og bara spila við okkur?

Endilega láttu mig vita hvenær þið viljið koma,

Ávallt velkomnar – veistu hvað þið eruð margar?

 Þar sem ég lít svo á að við séum frekar byrjendur en hitt þá vill hún frekar að komum sem fyrst enda er í sjálfu sér ekki eftir neinu að bíða.  Ég hef því sett upp á facebook viðburði og þið getið merkti við annan hvorn eða báða allt eftir því hvað á við hjá ykkur - en endilega merkið við Mætí eða mæti ekki möguleikann.  Það hjálpar að telja út hve margar við verðum en ég ætla að svara henni því á mánudaginn.

Á mánudagsæfingunni ætlum við að þjálfa móttöku - fleyg, hafa beina hendur, hlaupa með þær lausar og setja þær í stöðu undir boltann þegar að honum er komið en eins og Baldur sagði þá ættum við HELST að hlaupa í átt að honum :-).

Hér á síðunni er að finna youtube brot sem sýnir vel móttökuna - ef þið þurfið að rifja eitthvað upp.

Ég hef beðið um styrk til sveitarstjórnar til þess að ráða þjálfara - og eða búninga.  Við fáum að vita hvað kemur út úr því á miðvikudaginn.  


Friday, September 17, 2010

Volleyball Warm Up Drills - upphitun

Upphitunaræfingar

Búningar í blakið

Sælar verið þið

Jæja nú er þjálfari kominn í hús og nú þarf að huga að búningum.
Ég er búin að skrifa bréf til Hvatar og Sveitarstjórnar um styrk vegna þjálfara og búninga en á ekki endilega von á að neitt komi út úr því. Sakar ekki að reyna.

Bolur með númeri og merki kostar um 4500 krónur og jakki kostar 5000 - buxur eru svo nokkuð sem við þurfum líka að huga að en þangað til er þetta um 10 þúsund kall. Ég ætla að fara í bæinn bráðlega og hitta Henson og koma með tillögu að búningum.  Er ekki bara rétt að hafa þetta í Hvatarlitunum því þaðan fáum við húsnæðið?  Jakkarnir eru úr einhverju hágæða efni en nánar um það síðar.

Akranes:



Hér er dæmi um búninga frá þeim á Álftanesi- með eða án ermum. Það er hægt að hafa þær lengri og alveg langerma ef vill:

C-lið Álftaness

Sunday, August 22, 2010

Blakið byrjar 2010 - 2011

Nú er blakið byrjað á Borg.   Æfingar eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:00 - 18:30

Stefnt er að því að fara á Öldung í vor og því verður aukinn þungi í starfinu í vetur.

Verið er að leita að þjálfara sem kemur 2 sinnum í mánuði.  Einnig eru uppi áform um að auka samstarf við aðra kvennablakshópa í nágrenninu - t.d. sameiginlegar æfingar og slíkt.

Vegnaþessa gæti þurft að fara fram á  allt að 1000 krónur í sjóð á mánuði til þess að standa straum af greiðslum til þjálfara.

Kíkið við á fésinu - Blak á Borg.Blakverjur á fésinu