Thursday, November 8, 2007

Vóhó öflugur liðsauki

Það urðu nú ekki 10 kerlur á æfingu í dag - bara svona eins og 7 en við gerum betur næst. Ég verð að sýna sjálfstjórn og mæta ekki á næstu æfingu ef ég verð ekki orðin góð í fætinum. Held það sé ekki nema til hæfilegs gagns að hafa mig sprangandi um ófæra um að hreyfa mig ;-).

Kristín Helga, Elva, Sigrún Hreiðars (rosa blakari!!!), Anna Margrét, Guðbjörg, Sigurlín og Inga mættu í dag og stóðu sig bara vel!

Við bíðum eftir ykkur hinum - Sigrún Sighvats, Jóhanna Einars, Svanhvít, Kata og þið allar - nú förum við að mæta allar einhvern tímann - náum í amk 5 manna lið! Það væri sko gaman.

Sjáumst hressar og takk fyrir æfinguna.

2 comments:

Anonymous said...

Sæl Ingveldur.
Ég heiti Elva með V bara að láta þig vita. Ég er svolítið skrautleg á handleggjunum núna eftir blakið. Þetta er fjandi skemmtilegt.
Kveðja Elva Gull.

Anonymous said...

gvöð...laga þetta strax. Veit það er v - á aðra vinkonu með f og þetta er svo flókið - hlakka til að vera eins góð og þú í uppgjöfun Inga með í