Friday, November 16, 2007

Sexur í stuði




Það ætlar að ganga illa að fjölga á æfingum. Við lullum þetta í kringum hver aðra sex og sjö ;-). En þær standa sig vel allar sem ein þegar það er mætt!




Mig langar sko mest að gefa mér rós í hnappagatið fyrir snilldartakta við netið ;-) ótrúleg vörn sem ég sýndi náttúrulega - en það var einvörðungu vegna þess að ég hreyfði mig lítt úr stað og varð því að bíða róleg eftir því að boltinn kæmi til mín eða ég sæi þokkalega hvert hann stefndi - en engu að síður nokkur stig sum unnust hjá mér upp við netið.




En það er nú eiginlega ekki viðurkvæmilegt að verðlauna sjálfa sig svo tilþrifin hlýtur Sigurlín að eiga með þessar rosa uppgjafir þó þær færu svona svolítið út og suður og svo náttúrulega verður konana að fara að fá sér hnjáhlífar...




Auðvitað erum við allar hetjur; Kata og Guðbjörg eru náttúrulega bara berserkir, Sigrún Sighvats bjartsýnin uppmáluð og viljinn óbilandi, Elva er náttúrulega bara hornsteinn liðsins það er nú ekkert öðruvísi en það, nú og ég náttúrulega mæti - þó misjafnlega hölt sé. Plús til okkar allra við erum æði.


Og mikið óskaplega verður gaman þegar við verðum 10 á æfingu!

2 comments:

Anonymous said...

Við megum vera stoltar af því hversu mikið okkur hefur farið fram í vetur. Farnar að spila og geta stírt hert boltinn á að faraþ Ógó góðar :)
Þið sem eruð að hugsa um að koma, endilega látið verða að því þetta er hrikalega gaman!!!!
Kv Sigurlín sem ætlar að mæta með hnéhlífar næst( eða bara hætta að henda sér svona í gólfið alltaf).

Unknown said...

nei nei nei þú mátt ekki hætta að henda þér í gólfið - það væri hroðalegt slys ;-). Hlakka til að sjá hlífarnar - þá verðum við nú alvöru skoho!