
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið ;) Oft er gott að henda hugmyndum á loft í lok tímabils - þá eru þær ferskar - margt gleymist yfir sumarið.
Búninganefnd
Komið hefur fram tillaga um að Hvöt verði með fylgihluti á næsta Öldung - nefndin sér um þau mál!Tekur saman pantanir að hausti, utanyfirgalla, keppnistreyjur og buxur og kemur til stjórnar, sér um að þvo brúsana, fyrirliðatöskur, hreinsun og geymslu á aukabúningum. Og að allt þetta skili sér á mótin.
Keyptur verði kassi undir dót frá blakinu og hann geymdur (í íþróttahúsinu?) og í honum verði brúsargrindur, brúsar, töskur (og allt sem í þeim á að vera) og auka búningar.
Í töskunni á að vera (og er):
Instant kælipokar x2
Hitakrem
Kælisprey
Plástrar
Fiðrildi til að líma litla skurði
Ibufen
Tape
Teygjubindi
Keppnisspjald
Gæta þarf að því að ekkert vanti í töskuna og fyllt sé á - sé eitthvað notað.
Nótu skilað til gjaldkera sem greiðir viðkomandi f. kaupin.
Skemmtinefnd
Hennar verkefni er að halda utan um jólagiggið og vorhófið - og hvað annað sem henni dettur í hug til að gleðja mannskapinn. Sönghefti, myndbandagerð, upptökur og annað.Stjórn
Liðsstjóri, gjaldkeri og meðstjórnandi.Liðsstjóri sér um skráningar á mót og stýrir starfinu með stjórn.
Liðsstjóri heldur utan um boð liða um að koma eða boðum til Hvatar um leiki. Hann sér um leikjaskipulag á mótum Hvatar og hefur samband við mótanefndir vegna annarra móta. Liðsstjóri er talsmaður liðsisns út á við og skilar ársskýrslu til Hvatar. Liðsstjóri sér einnig um þjálfaramál og skipulag æfinga í samráði við þjálfara og stjórn.
Stjórn ber ábyrgð á húsnæðismálum varðandi t.d. Öldung.
Verkefni næstu stjórnar er t.d. að ákvarða æfingagjöld, fjölda þjálfaraæfinga, leggja línurnar f. mót vetrarins, ákvarða reglur um hvenær og hvort skuli verða greiðslufall hjá liðsmanni, t.d. vegna meiðsla, veikinda eða forfalla annarra - eða hvort allir liðsmenn greiði æfingagjöld og það sé svo þeirra að mæta eða mæta ekki, eða hætta ella. Mikilvægt er að gæta jafnræðis í þessum málum og samræma hvaða háttur er hafður á.
Og svo passar stjórnin upp á allar hinar nefndirnar ;)
Móta og veitinganefnd
Sér um og heldur utan um með stjórn, haustmót Hvatar og Súpumót Hvatar. Veitingar, undirbúning á vettvangi og stýrir frágangi. Auðvitað leggjumst við á eitt um að aðstoða eins og við höfum gert.
Alice Petersen er fulltrúi blaknefnd HSK -
þannig að við erum orðin málsmetandi blaklið á Suðurlandi!
Mér finnst persónulega að stjórn blaksins ætti að mæta á Aðalfund Hvatar.
3 comments:
awwwwwwwwwwwwww engin comment komin - Eva Björk hvar ert þú :)
Það eru svona myljandi undirtektir - við tökum á þessu í haust ;)
Rely on me, I comprehend precisely how you might be feeling.
For an eleven ml jar, it prices about $27 and for a 33 ml jar, the price tag is around $forty.
my webpage ... buy dermatend
Post a Comment