Monday, January 16, 2012

STÓRA helgin að baki

Það þótti mörgum í mikið ráðist að skrá Hvöt á tvö mót helgina 14. og 15. janúar - og víst er að satt reyndist því margir skráðu ekki einu sinni lið sín á eitt mót! Laugarvatnsleikarnir féllu niður en Bjössi var svo frámunalega almennilegur að stefna okkur, Dímoni og Laugdælum til sín á Laugarvatn til þess að spila þrátt fyrir það. Dímon heltist úr lestinni - og því voru það ,,bara" Laugdælur og Hvatarínur sem mættu til leiks. Sem sagt meira en margur gerði :). Þar fengum við að spila við A og B lið Laugdæla og gekk það vel. Þær sem mættu voru Íris, Brúney, Eva, Hugrún, Guðbjörg og Alice og spiluðu þær Alice og Guðbjörg sem sjöttu manneskjur með Laugdælum A einnig. Þannig fékkst dýrmæt leikreynsla fyrir stóra mótið - HK trimmið sem var daginn eftir.

Hvatarínurnar mínar þurftu að leggja snemma af stað - áttu fyrsta leik, en ég hafði samband við HK og benti þeim á að e.t.v. væri nú sniðugra að láta einhver lið nær byrja að spila - Heiðbjört benti okkur á að slíkt væri hægt að setja í athugasemdir. Við munum það framvegis en ég vissi svo sem ekkert í minni haus - ekki hvenær þetta byrjaði eða endaði - hélt það yrði kannski um 10 og fannst það ekki svo snemmt.

Siggi tilkynnti komu sína og honum var útvegaður einkabílstjóri - en hvort sem það var tilhugsunin um mótið eða ennað lagðist kappinn í rúmið og komst ekki - en takk Siggi fyrir að bjóðast til að koma. Það var okkur mikils virði. Baldur var forfallaður og með vottorð :).

Eftir að Fagrilundur fannst lá leiðin bara upp á við hjá Hvöt - liðið náði frábærum árangri og klárlega í flotta reynslu. Alice hélt hópnum saman í gegnum þykkt og þunnt - peppaði og hvatti eins og henni er einni lagið og allar lögðust stelpurnar á eitt um að gera daginn skemmtilega fyrst og fremst og einnig árangursríkan. Úrslitin skipta ekki öllu máli en assgoti er gaman þegar þau eru svona góð samt :).

Ingveldur sat á Akureyri - algjörlega ófær um að læra nokkurn skapaðan hlut heldur hékk á blak.is og í símanum við Alice og þóttist einhver áhrif hafa - amk hughrif :). Margir leikir fóru 1-1 og því var mikilvægt að vinna þær hrinur sem unnust með miklum mun og það gerður Hvatarínurnar og urðu efstar þriggja liða sem voru með jafn mörg stig - og mörg þessara liða unnu okkur á Öldung þannig að þetta eru bara frábærar fréttir. Það var enda þéttur hópur sem mætti á svæðið:

Hugrún, Brúney, Anna Margrét, Bryndís, Eva Björk, Alice, Rut, Hófí og Guðbjörg lék síðustu tvo leikina.

Höldum áfram, verum duglegar að mæta á æfingar, bætum þrekið og líkamlegt atgervi með skiplagðri hreyfingu - en fyrst og fremst höfum gaman. Við erum ekki neitt - ef við skemmtum okkur ekki saman.

Ingveldur stefnir á -40 kíló og lofar sterkri innkomu - einhvern tímann :).



Hvöt - Afturelding - 13 - 21 / 17 - 21

Hvöt - Grótta 21 - 12 / 21 - 11

HK Wunderblak e - Hvöt 21 - 13 / 15 - 21 (frábær viðsnúningur!!!!)

Hvöt - Afturelding D 21 - 17 / 19 - 21 (hörkuslagur!)

Leðurblökur - Hvöt 9 - 21/ 11 - 21 (okkar vinalið!)

Einn leikur tapaðist, tveir leikir unnust og jafnt í tveimur. Flott skor og mikið skorað - en þó ekki síður - góð vörn því það var það sem fleytti okkur í annað sætið :)

Friday, January 13, 2012

Í upphafi keppnishelgar



Kæru Hvatarínur

Nú er stór helgi framundan hjá okkur og margt um að hugsa. Ég er afskapleg stolt af því að Hvöt getur sent lið bæði á Laugarvatn og á HK Trimm, en ég sé að það eru ekki mörg lið að austan sem mæta á Trimmið – t.d. ekki Laugaland, ekki B lið Hamars, né Dímon. Þannig að það er hreinn heiður að fá að senda ykkur á mótið og ná þannig í dýrmæta reynslu. Úrslitin skipta ekki öllu máli – það er að vera saman, og vinna saman að sameiginlegu markmið.

Blak er liðsíþrótt og þar gildir að hver og ein muni að liðið verður sterkara ef við stöndum saman og hugsum um heildina. Góð móttaka tryggir góðan bolta númer tvö sem þýðir að smassið sem á að koma á eftir – er líklegra til þess að vera árangursríkt. Uppspilari er lykilmaður í hverju liði – mikið er komið undir því að hann sé útsjónarsamur og lesi leik síns liðs vel og sjái hvar best er að senda bolta þrjú þannig að staða fjögur og sex eigi sem besta möguleika á því að koma andstæðingunum á óvart. Góð móttaka er að sjálfsgögðu besta tryggingin fyrir góðri sókn – góð sókn er móttaka, uppspil, og árangursríkt smass.

Við þurfum að lesa boltann vel og vera viðbúnar því að hann komi ekki alltaf á þann stað sem við teljum heppilegastan – heldur ætlum við að vera viðbúnar flestu - sendingar/spil heppnast ekki alltaf þrátt fyrir góðan vilja. Boltinn er ekki á röngum stað – heldur við.  Mikilvægt er að við snúum í átt að boltanum – og ef spilið er á okkar helmingi  þá fylgjumst við með því spili en snúum ekki að velli andstæðingsins fyrr en boltinn er farinn yfir netið.  Eftir að leikmaður hættir í hávörn þarf hann að vera snar í snúningum og viðbúinn að taka við bolta frá sínum eigin liðsfélögum – hann er jú að koma þaðan. Gott er að fara tvær í hávörn – mynda vegg en þá þarf líka að vera snör að fara aftur á sinn stað – við megum ekki mikið hlaupa úr stöðunum  okkar  þó freistandi sé en þegar það gerist þarf einhver að dekka það svæði á meðan.  Vegalengdin er ekki mikil á milli sex stúlkna á vellinum – og þó einhver sé hraðari en önnur er mikilvægt að fara ekki langt frá ,,sinni“ stöðu, nema vera því hraðari til baka. Munum líka að dekka vel svæðið á milli hávarnar og sóknarlínu - látum ekki bolta detta dauða niður. Hávörnin tekur ekki bolta sem detta fyrir aftan hana - en hins vegar er mikilvægt að vera ekki í hávörn nema þannig spil sé í gangi hinum megin.

Hávörn nýtist þegar hávörn er á móti – eða þegar bolta er blakað eða tekinn með fingurslagi á velli andstæðingsins – ef andstæðingar taka bolta með fleyg er líklegra að hann sé hærri og lengri en hávörn ræður við  - þá er bakkað og reynt að verjast honum á annan hátt.

Uppspilari Á bolta tvö og verður að vera dugleg að hrópa næsti ef hún ætlar ekki í hann- það þýðir þó ekki að hinar standi bara hjá því auðvitað tökum við bolta sem nánast lendir á nefinu á okkur! Við hinar þurfum að vera duglegar að hrópa nafn okkar – tala saman – vinna saman sem heild og alltaf að hugsa um að bolti 1 og 2 sé þannig að gott sé að taka á móti honum en bolti þrjú á náttúrulega að vera hreinn óþverri J. Hugum að því að nýta fingurslag vel - við dettum í það að ofnýta fleyginn - við ráðum betur við að stýra spilinu ef við notum fingurslag og MUNUM AÐ SPILA HÁA BOLTA, þá er svo miklu auðveldara að vera til - og það er jú það sem við viljum - auðvelda okkur lífið. Nóg er nú samt ;)

Ekki klikka á uppgjöfum – það er miklu flottara að sjá boltann fara yfir en lenda í netinu eða utan vallar – það þýðir þó ekki að uppgjafir eigi að vera títlulegar og ragar – öðru nær – reynum einmitt að dúndra á þær og þær ykkar sem eigið þessar flottu uppgjafir endilega notið þær – en tilraunastarfssemi er betra að geyma til æfinga J.

Síðast en ekki síst spilum við blak til þess að hafa gaman af. Við stöndum í þessu saman, við erum frábærar að standa í þessu yfirleitt 

– við höfum allar okkar bresti, erum misgóðar, en við erum allar saman í Hvöt og þar er það léttleikinn sem ræður ríkjum. Okkur sinnast, við tökum rangar ákvarðanir – við erum mistæktar – allar! En þð er allt í lagi því það er gaman – kannski ekki alltaf og áreiðanleg misgaman – en þegar upp er staðið eru það góðu minningarnar sem gerir þetta svo skemmtilega heilsubót (og hnékiller).

Ég er svo stolt af ykkur að fara – nýtið laugrdaginn vel – setjist saman og ræðið um leikinn eftir á – hvað má bæta og hvernig við bætum það. Ekki taka hlutunum persónulega – og vöndum gagnrýni okkar – rýnum til gagns. Verðum betri – stefnum á öldung 2012!

Og þangað til annað finnst:

Skemmtilegt skemmtileg – sólin sólin!

Baráttukveðjur

Helgin 14. og 15. janúar

Um helgina er dagskráin þessi:


Laugardagur

Laugarvatn klukkan 13:00
Leikið við Laugdælur - amk 2 leikir.
Sund og pottur á eftir.
Mæting:

Iris SvavarsdóttirGuðjón ÁgústssonAlice PetersenHugrún Sigurðardóttir,Eva Björk KristborgardóttirBruney Bjarklind og Guðbjörg Viðarsdóttir.


Guðbjörg er liðsstjóri

Sunnudagur

HK - Trimm Fagralundir
Mæting:
Alice, Anna Margrét (?), Brúney, Bryndís, Eva Björk, Hófí, Hugrún og Rut.

Gott væri ef fleiri gætu mætt!

Alice er liðsstjóri


Tuesday, January 3, 2012

Dagskráin í janúar og febrúar

Æfingar eru mánudaga og fimmtudaga

Mælst er til þess að mæta snemma og taka góða upphitun fyrir æfingu - í boði verða léttar stöðvar eða aðstaðan uppi til æfinga. Hægt að gera heilmikið á hálftíma - nýtum okkur frábæra aðstöðu til þess að koma okkur í gott form!

Ekki er vitað hvenær þjálfarar koma en stefnt er að því að þeir komi 1x í viku hverri. Jafnvel oftar ef undirbúningur krefst þess.

Laugarvatnsleikarnir í blaki eru 14. janúar.

HK trimm - 3. deild kvenna spilar 15. janúar svo við getum keppt þar. Það gæti verið gott að taka tvo daga og sjá hvernig það leggst í okkur - þarf að koma fólkinu í form ;)

8. febrúar er hsk mótið í blaki  b riðill sem er væntanlega okkar riðill - keppnin fer fram á Laugarvatni. Seinni aðferðin fer fram 3. mars, í Iðu.

Við erum skráðar með tvö lið í hsk - en gott væri að stefna á að fara með amk eitt lið á Laugarvatn og svo Hk trimmið - þurfa ekki allt að vera sömu konurnar. Gott væri að merkja sem allra fyrst við á Facebook hvort konur komist eða tilkynna hér fyrir neðan á þessari færslu.

Bestu nýárskveðjur, Ingveldur