Wednesday, October 5, 2011

Gisting á Trölla 2012 - UPPFÆRT



Það hefur komið upp hugmynd um að selja lakkrís/nammipoka á 1000 krónur í fjáröflun fyrir gistingunni á Trölla 2012.


Það er spurning hvort hver blakkona taki að sér að selja 10 poka.  Gróði af því yrðu um 500 krónur á pokann = 5000 krónur á konu  Ef konur sem ætla á öldung vilja ekki vera með í fjáröflun geta þær lagt inn 5000 krónur.

Eins ráða þær konur sem ætla ekki norður (er það einhver?), ákveðið hvort þær ætli að vera með í fjáröfluninni en auðvitað væri frábært ef allar leggðust bara á eitt og söfnuðu í sjóðinn hvort sem þær færu norður eða ekki - en hver verður að fá að ráða því.

Það má líka hugsa sér að við förum í tvær svona 10 poka fjáraflanir og því þetta er afar fljótt að telja og frábært að fá upp í gistinguna.

Verð á gistingu er 220 þúsund með rúmfötum og handklæðum fyrir 4 hús.

Það er spurning hvort við látum eldhúss húsið vera félagsmiðstöðina þar sem við hittumst og spjöllum á meðan það er rólegra yfir hinum húsunum þar sem konur geta farið og sofið í sínum bólum í friði fyrir þeim sem vakna snemma og fá sér morgunverð (nú eða eru lengi á fótum - sem verða fáar því við ætlum að ná svo svakalegum árangri og þá má náttúrulega ekki vera neitt næturbröli :))

Við ræðum þetta betur á mánudaginn - því það  áreiðanlega gott að selja pokana um næstu mánaðarmót - ekki mikið um fjáröflun í gangi núna og jólin ekki alveg skollin á. 

En - það er ekkert ákveðið - þetta er í sjálfu sér allt á umræðustigi.

(Hér eru smá upplýsingar sem gætu auðveldað söluna :))
 
Þessir snillingar  (Hugrún og Eva) sem fóru að hugsa um Öldung 3. maí í vor settu okkur á biðlista á bungalóum á Ólafsfirði. Nú losnuðu fjórir slíkir - tvær gerðir - 1 er með stofu (tvöfaldur svefnsófi) og litlu eldhúsi og ísskáp en þrír eru með tveimur herbergum - tvö rúm í hvoru. -Hægt er að setja dýnu á milli rúma ef vill. Við ákváðum að skella okkur á 4 hús - það eru kr. 14 þúsund nóttin * 4= 56 þúsund : 4= 14 þúsund á mann þessa helgi. Ef það eru 5 í húsi þá 11000 og ef það eru 6 þá 9 þúsund rúmlega fyrir alla dagana. Liðisstjórarnir telja að betur fari um okkur þarna en allar saman í einu húsi (með 1 klósetti) þar sem þarna eru 1 klósett í hverju húsi og pottur við einhver þeirra.

No comments: