Fyrsta æfingin að baki í blakinu - blakárið 2008-2009. Metnaðurinn er nokkur í undirritaðri og vonast ég til að fá til liðs við okkur frískar konur sem tilbúnar eru að mæta, æfa og spila - og uppskera svo á öldung 2009.
Þjálfaramál líta vel út en huga þarf að því hvernig greiða skuli fyrir þjálfunina. Þau mál eru í vinnslu. Allir verða að fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Ég, Elva, Guðbjörg og Anna Margrét mættum síðast og vonumst til þess að vera amk 8 næst. Koma svo!
1 comment:
hæ eru þið ennþá að blakast eða??? ein sem hefur smá áhuga á að prufa.. :)
kær kv. Helga
Post a Comment