
Halló allar ;-)
Það voru sex og hálf kerla mætt á blakæfingu í gær - sem hlýtur að teljast nokkuð gott og gaman að vera fjórar öðru megin þegar er spilað ;-).
Við bjóðum Sigrúnu Sighvats hjartanlega velkomna í hópinn!
Hún fær hugrekkisverðlaunin í þetta sinn
Mér tókst að stúta á mér hælnum sem þó hafði lofað að vera svo gott sem góður og gekk um með hækju heima hjá mér í gær - það er svona spurning um að hvíla næst og horfa bara á og hrópa misheppileg komment inn á völlinn ;-).
En þetta lítur vel út - Sigurlín, Jóhanna Einars, Svala og vonandi Bergþóra eru kerlur sem við eigum uppi í erminni og vonandi skilum við okkur sem flestar á næstu æfingu.
Anna Margrét segir að við eigum boð um leik hjá Laugdælum en líklega er best að geyma þá viðureign þar til við höfum spilað 4 - 5 nokkrum sinnum í hverju liði.
Svo skulum við hver og ein reyna að veiða með okkur nýliða, það munar um hvern!
Kveðja frá Ingu sem er undir aumum hæl lögð ;-)
p.s: það er eins gott að hún Sigurlín nái þessu dómaranámskeiði sem henni datt í hug að fara á - á fimmtudegi!