Saturday, May 5, 2012

Uppgjör og næsta tímabil



Ekki er ráð nema í tíma sé tekið ;) Oft er gott að henda hugmyndum á loft í lok tímabils  - þá eru þær ferskar - margt gleymist yfir sumarið.





Hvernig væri að hafa þessar nefndir starfandi næsta tímabil?

Búninganefnd

Komið hefur fram tillaga um að Hvöt verði með fylgihluti á næsta Öldung - nefndin sér um þau mál!
Tekur saman pantanir að hausti, utanyfirgalla, keppnistreyjur og buxur og kemur til stjórnar, sér um að þvo brúsana, fyrirliðatöskur, hreinsun og geymslu á aukabúningum. Og að allt þetta skili sér á mótin.

Keyptur verði kassi undir dót frá blakinu og hann geymdur (í íþróttahúsinu?) og í honum verði brúsargrindur, brúsar, töskur (og allt sem í þeim á að vera) og auka búningar.

Í töskunni á að vera (og er):

Instant kælipokar x2
Hitakrem
Kælisprey
Plástrar
Fiðrildi til að líma litla skurði
Ibufen
Tape
Teygjubindi
Keppnisspjald

Gæta þarf að því að ekkert vanti í töskuna og fyllt sé á - sé eitthvað notað.
Nótu skilað til gjaldkera sem greiðir viðkomandi f. kaupin.

Skemmtinefnd

Hennar verkefni er að halda utan um jólagiggið og vorhófið - og hvað annað sem henni dettur í hug til að gleðja mannskapinn. Sönghefti, myndbandagerð, upptökur og annað.

Stjórn

Liðsstjóri, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Liðsstjóri sér um skráningar á mót og stýrir starfinu með stjórn.
Liðsstjóri heldur utan um boð liða um að koma eða boðum til Hvatar um leiki. Hann sér um leikjaskipulag á mótum Hvatar og hefur samband við mótanefndir vegna annarra móta. Liðsstjóri er talsmaður liðsisns út á við og skilar ársskýrslu til Hvatar. Liðsstjóri sér einnig um þjálfaramál og skipulag æfinga í samráði við þjálfara og stjórn.

Stjórn ber ábyrgð á húsnæðismálum varðandi t.d. Öldung.

Verkefni næstu stjórnar er t.d. að ákvarða æfingagjöld, fjölda þjálfaraæfinga, leggja línurnar f. mót vetrarins, ákvarða reglur um hvenær og hvort skuli verða greiðslufall hjá liðsmanni, t.d. vegna meiðsla, veikinda eða forfalla annarra - eða hvort allir liðsmenn greiði æfingagjöld og það sé svo þeirra að mæta eða mæta ekki, eða hætta ella. Mikilvægt er að gæta jafnræðis í þessum málum og samræma hvaða háttur er hafður á.

Og svo passar stjórnin upp á allar hinar nefndirnar ;)

Móta og veitinganefnd

Sér um og heldur utan um með stjórn, haustmót Hvatar og Súpumót Hvatar. Veitingar, undirbúning á vettvangi og stýrir frágangi. Auðvitað leggjumst við á eitt um að aðstoða eins og við höfum gert.

Alice Petersen er fulltrúi blaknefnd HSK - 
þannig að við erum orðin málsmetandi blaklið á Suðurlandi!

Mér finnst persónulega að stjórn blaksins ætti að mæta á Aðalfund Hvatar. 

Wednesday, April 25, 2012

UMF Hvöt tekur yfir Tröllaskagann 2012

Dagskrá mótsins

Það er all að ske!

Við bomsurnar á Súbbanum náum í mótsgögnin á Sigló.

Hér má finna dagskrána!

Breyting á umsókn HK - breyttur tími

Þeir hjá HK eru nú komnir með breytta dagsetningu - eru með þetta síðustu dagana í apríl.

Smellið hér - og svo á merki liðanna til þess að kynna ykkur fyrirkomulagið.

Til umsjóanrliða


Umsjón á leikjum

Mikilvægt er fyrir liðin að skoða vel hlutverk þeirra þegar kemur að umsjónarleikjum. Skoðið vel textann (getum ekki sett myndirnar inn) hér að neðan en myndirnar er hægt að sjá á heimasíðunni sem og í mótsblaðinu.
Orðsending til umsjónarliða

Umsjónarlið útvega tvo línuverði, ritara og stigavörð.
Umsjónarlið sjá um að skrifa á spjöld nöfn þeirra liða sem eru að fara að spila og færa þau á milli hrina. Liðið sem er skráð á undan á leikjaplani skal vera á velli sem er ritara á vinstri hönd og á það fyrstu uppgjöf í leiknum og eins í oddahrinu ef til hennar kemur.
Umsjónarlið skulu vera tilbúin til starfa tímanlega. Tímasetningar leikja eru til viðmiðunar. Leikir hefjast strax og næsta leik á undan lýkur burtséð frá því hvort auglýstur leiktími er kominn. Umsjónarlið skal láta keppnisstjóra viðkomandi húss vita ef leikur getur ekki hafist af því að dómari eða keppnislið er ekki mætt.

Línuverðir skulu gefa skýr merki.
Sé knöttur inni skal benda með flagginu niður og inn á völlinn (mynd 1).
Sé knöttur úti skal lyfta flagginu hátt upp í loft (mynd 2).
Sé snerting við hávörn eða leikmann skal línuvörður lyfta flagginu upp og setja lófa hinnar handar ofan á það(mynd 3).
Snerti knöttur netspíru, skeri framlengda línu hennar eða fari utan í hana skal línuvörður veifa flagginu og benda á netspíru. Snerti leikmaður sem er í uppgjöf endalínu vallarins í uppgjöf skal línuvörður veifa flagginu og benda á endalínur vallarins (mynd 4).

Treysti línuvörður sér ekki til þess að taka ákvörðun krossleggur hann handleggi á brjóst (mynd 5).