Monday, September 26, 2011

Haustmót KA

Blásið er til boltafjörs á Akureyri dagana 25. og 26. nóvember 2011.
Búist er við fjölmörgum liðum og því vissara að skrá sig fyrr en síðar.
KA öldungablakarar efna enn einu sinni til árlega Haustmótsins síns og búist er við að þátttakan verði um og yfir 30 lið.
Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 23. nóvember, kl. 19:00 því raða þarf mótinu upp þá um kvöldið.
Það er okkur sönn ánægja að bjóða upp á nýtt gólf í KA-heimilinu svo nú eru engar afsakanir lengur teknar gildar.
Enn er tími til að æfa magavöðvana og brosið, safna liði og mæta til leiks á Akureyri í nóvember.
Upplýsingar veitir Hannes Garðarsson - 862 9091.



Við erum komnar með íbúð við Hótel KEA - nú er bara að skrá sig á facebook!





Wednesday, September 21, 2011

Boðsmót Hvatar á Laugarvatni 24. september

Þátttakendur vera frá Leðurblökum, Hamri og Hvöt sem verður með tvö lið.








Dagskrá: 13:00 opnar Íþróttahúsið á Laugarvatni.


Allir spila við alla. 
Hver hrina er í 25 - 


2 hrinur unnar.


Oddahrina upp í 15.


 Nóg er að vinna hrinu með 1 stigi.


Við spilum á tveimur völlum þannig að búast má við að mótið klárist um 16:00. Vonandi sjáumst við sem flestar - og ef þið eigið dómara í handraðanum er ykkur velkomið að taka þá með!


13:30 völlur 1 Hvöt 1 - Leðurblökur ---------- völlur 2  Hvöt 2 - Hamar


14:30 völlur 1 Hvöt 1 - Hamar ------------- völlur 2 Hvöt 2 - Leðurblökur


15:30völlur 1 Hvöt 1 - Hvöt 2 ------------- völlur 2 Hamar - Leðurblökur 


(tímasetningar geta breyst - sérstaklega þar sem ekki fara allir leikir endilega í 3 hrinur ;))


Takk fyrir að koma til okkar.


Gott væri að fylgdarfólk gæti tekið að sér stigaskráningu. Illa hefur gengið að fá dómara. Ef þið þekkið dómara megið þið endilega grípa þá með ykkur!


Kveðja Hvatarínurnar :)





Monday, September 19, 2011

Lesið blakreglurnar


Nú er tíminn til þess að lesa blakreglurnar. Kíkið vel á dómaramerki. Nú skilur maður allt miklu betur því reynslan er orðin svo mikil sem raun ber vitni. Hlekkurinn er hér neðar til hægri.

Hér á blogginu má  finna tengla, myndbönd og fleira á auðveldari hátt en á fésinu minni einnig á fésbókarsíðuna Blak á borg sem er lokaður hópur og því er innihald hans bara sýnilegt meðlimum.

Nýtt reikningsnúmer sept 2011

1169-05-250302 alice petersen kt. 1402685269
Þegar þið eruð að leggja inn skuluð þið skrá í tilvisunarreitin hver borgar og líka gott að senda e-mail á alice@kerholsskoli.is. kv. Alice