Friday, March 18, 2011

Æfingahugmyndir fram að Öldung

Jæja nú fer að volgna undir okkur - verulega!
Stefnt er að því að fara á Öldung og ná árangri þar. Það þýðir að sigurstranglegu liði verður stillt þar upp - nema hvað, svaka kellur að fara - en til þess þarf að ná sam(h)æfingu, liðsanda og liðsheild. Þess vegna hefur verið ákveðið að stilla upp í lið - eins og við gerum í gær nema liðin eru í sjálfu sér ekki óumbreytanleg heldur verður konum skipt út ef þannig atvikast.

Á mánudaginn 21. mars verður móttaka æfð og staldrað við. Það þýðir ekki að flýta sér um of - við verum að gefa okkur tíma til þess að ná boltanum hátt á loft og taka vel á móti honum og skila honum vel til næsta manns - þannig nær liðið árangri.

Við erum með toppþjálfara nýtum okkur þá - hlustum á það sem þeir hafa að segja - þeir eru ekki alveg fæddir í gær - sumir búnir að spila í meira en 20 ár og enn að berjast á Íslandsmeistaramótinu. Þeir hafa líka reynslu af þjálfun - nýtum okkur þá til hins ítrasta. Ég ætla að taka mig á í því að hlusta á þá og reyna allt sem ég get til þess að fara eftir því sem þeir segja - ekki veitir af - þó lappirnar beri mig ekki alltaf þangað sem hugurinn ber mig.

Það er mikilvægt að við mætum sem allra allra best á allar æfingar fram á öldung - það er mikilvægt að reyna að ná í tvö lið á hverri æfingu.

Mesti tími okkar á æfingum mun áfram fara í móttöku. Við bókstaflega verðum að ná boltanum betur og skila honum til liðssfélaga okkar á sem bestan hátt. Þar skiptir öllu að ná boltanum hátt á loft - það er á ábyrgð allra í liðinu að  það gerist - engin ein á sér sinn stað - né hefur hún efni á því að halda að einhver önnur eigi boltann - þá á bara sú sem getur og segir hef, boltann og ber að skila honum sem best af sér.

Hér eru upphafsliðin sem spilar eftir æfingu á mánudag:
6  Alice
1  Anna Margrét 
3 Birna Guðrún
2 Bryndís
5 Hugrún
4 Rut

Pressulið
3 Ingveldur 
2 Ellisif 
4 Eva
2 Signý
1 Íris
6 Laila
Ef ekki næst í fullt lið þarf að tækla það - eins getur verið að við færum leikmenn til eftir því sem gengur.

Friday, March 4, 2011

Leikmannalisti

 
1 Helga
2 Guðbjörg
3 Ellisif
4 Anna Margrét
5 Bryndís
6 Eva Björk
7 Birna
8 Signý
9 Alice
10 Hugrún
11 Hófí
12 Brúney
13 Inga
14 Laila
15 Íris
16 Rut