Það voru hressar konur sem mættu á æfingu í dag - þær bíða spenntar eftir nýju neti og nýju ári með öllum þeim stúlkukindum sem þá bætast í hópinn ;-).
Við vorum bara góðar og hefur farið mikið fram - er það ekki bara ;-)
Thursday, December 13, 2007
Monday, December 10, 2007
Magga uppgjafari
Það kom ein snót í blakliðið okkar, hún lætur ekki mikið yfir sér og ekki er hávaðanum fyrir að fara! En þegar sú stutta fer í það að gefa upp þá getum við hinar bara gefist upp samstundis. Púff - framfaraverðlaunin fara til hennar Möggu það er klárt. Til hamingju með það Magga.
Við vorum 10 á æfingu síðast sem er algjört með og vonir standa til svipaðrar mætingar það sem eftir er. Okkur bættist enn liðsafli í hópinn - hún Elín kom og Auður glímudrottning þannig að góðir hlutir eru að gerast.
Næsta mál er að skrá sveitavarginn í Hvöt og stofna þar blakdeild mikla!
Laugdælir hafa boðið okkur að koma á æfingu eftir áramótin og við stefnum ótrauðar á það náttúrulega og erum glaðar og sælar með svo gott boð. Við bíðum eitthvað með keppnina....
Líklega verður Öldungur látinn bíða þetta árið nema einhver stórkostleg tilþrifi sjáist á næstu vikum - já og ekki má nú borða yfir sig um jólin. En 2009 verður farið á Öldung það er alveg klárt og við skulum nú ekki afskrifa neitt enn híhí!
Sjáumst hressar á fimmtudaginn
IE

Subscribe to:
Posts (Atom)